150. löggjafarþing — 78. fundur,  17. mars 2020.

þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta.

317. mál
[19:36]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég verð nú byrja á því að vísa því til föðurhúsanna að ég hafi verið að ýja að því að starfsmenn óbyggðanefndar væru illa innréttaðir. Ég kannast ekkert við það úr tali mínu. En ef hv. þm. Bjarkey Olsen skildi þann hluta ræðu minnar svona öfugt þá er svo sem ekki skrýtið að hún hafi komið hingað upp heldur undin. Það er auðvitað þannig að það blasir við til hvaða athugasemda tekið var tillit, það er ekki flókið. Ég geri ráð fyrir því að hv. þm. Bjarkey Olsen komi hingað upp í annað andsvar og þó að ég sé ekki í stöðu til væri áhugavert að heyra til hvaða sjónarmiða tillit var tekið í nefndinni hvað varðar þær athugasemdir sem komu fram frá Landssamtökum landeigenda eða Samtökum eigenda sjávarjarða. Mér þykir algjörlega blasa við að aðstaða umsagnaraðila hafi verið mjög ójöfn í þessu máli, a.m.k. þegar skoðað er til hvaða athugasemda tekið var tillit.