150. löggjafarþing — 78. fundur,  17. mars 2020.

þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta.

317. mál
[19:38]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Það að fá gesti inn á milli nefndarfunda til að fjalla um tiltekin atriði þýðir ekki að maður verði við því sem óskað er eftir hér í þingsal. Sú gagnrýni sem kemur fram á mál, hvort sem það er þetta mál eða önnur, verður ekki endilega til þess að við öllu verði orðið. Það heitir ekkert endilega vönduð vinnubrögð, að mínu mati. Þá settu menn líklegast fá lög því að við þekkjum það jú að okkur greinir á um margt. Ég vil bara árétta að það var farið mjög vel yfir athugasemdir sem beindust að óbyggðanefnd og hennar störfum og það sem fram kemur í frumvarpinu, sem gagnrýni umsagnaraðila snerist um, var hrakið. Það er misskilningur sem felst að hluta til í umsögnum sem fyrir nefndina bárust og ég vil bara árétta það. Hv. þingmaður nefndi minnisblaðið sem barst og það skýrir mjög vel það sem hér var fjallað um, kemur fram í umsögnum Landssamtaka landeiganda, í umsögnum Samtaka eigenda sjávarjarða o.s.frv.

Ég get ekki fallist á það, hv. þingmaður, að þó að ekki verði orðið við öllu sem umsagnaraðilar hefðu gjarnan viljað, af því að það vill jú hver hafa hlutina eftir sínu nefi, þá breytir það því ekki að málsmeðferð þessa máls, sem hefur verið mjög lengi til umfjöllunar, var mjög góð. Það var sagt og hrakið hér að ekki er verið að skilgreina netlög og greinin hefur ekki að geyma ákvæði um brottfall réttinda af neinu tagi. Hún hefur ekki að geyma ákvæði um afmörkun réttinda, hún fellir ekki ákvæði rekabálks Jónsbókar úr gildi eða takmarkar gildissvið rekabálks Jónsbókar. Það liggur alveg fyrir. Það er farið sérstaklega yfir umsögn Samtaka eigenda sjávarjarða sem byggðist að hluta til á misskilningi. Ég vil árétta það enn og aftur að fulltrúi Miðflokksins (Forseti hringir.) óskaði ekki eftir því að aðrir gestir kæmu fyrir fundinn milli funda eða lagðist gegn því að málið væri tekið úr nefndinni, á engum tímapunkti. (Gripið fram í.)