150. löggjafarþing — 78. fundur,  17. mars 2020.

þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta.

317. mál
[19:44]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil bara ítreka það sem ég sagði í síðasta andsvari mínu við hv. þm. Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur að mér heyrist á öllu að það verði áhugaverður fundur í allsherjar- og menntamálanefnd hvað þetta atriði varðar. En má þá skilja það sem svo að innköllunin til nefndar á milli 2. og 3. umr. hafi í raun einvörðungu verið til þess að taka á álitamálum sem sneru að 5. gr. frumvarpsins? Hv. þm. Birgir Ármannsson segir að svo sé ekki en þau gögn sem aðrir þingmenn en nefndarmenn hafa tækifæri til að skoða eru einvörðungu þetta minnisblað óbyggðanefndar sem fjallar fyrst og fremst um sjónarmið sem tengjast 5. gr. Þá liggur það bara eins og það er, þetta er þá væntanlega svona. Ég man ekki eftir þessu máli úr stjórnarsáttmálanum. Það hefur þá verið tekin sjálfstæð ákvörðun um það hjá Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki að fara í þessa vegferð með Vinstri grænum því að málið er flutt af hæstv. forsætisráðherra okkar, Katrínu Jakobsdóttur, formanni Vinstri grænna, og miðað við þá ofuráherslu sem sumir hæstv. ráðherrar leggja á það að mál sem eru nefnd í stjórnarsáttmála komist áfram eða þá að mál sem ekki eru nefnd í stjórnarsáttmála komist ekki á dagskrá þá er ekki annað að skilja en svo að þetta mál, jafn undið og það nú er, leggist vel í þingflokka Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, og það kemur á óvart. En varðandi samskiptin í nefndinni þá reikna ég með að fulltrúi Miðflokksins taki þau upp á næsta fundi. Við getum ekki rætt þau hér því að ekki var ég á þessum fundi. En það breytir ekki því augljósa að umsókn barst frá hagaðilum daginn eftir að málið var tekið út og þá væntanlega á grundvelli þess að samkomulag hefði náðst sem dygði stjórnarflokkunum.