þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta.
Herra forseti. Ég ætla ekki að lengja þessa umræðu öllu meira en nýta mér samt þessa aðra ræðu til að klára það sem ég ætlaði að segja í fyrri ræðu minni. Ég var þar kominn að ræða skýringar óbyggðanefndar og það sem kemur fram í lögunum. Eins og ég taldi þá er verið að víkka út starfssvið nefndarinnar umfram það sem var hugsað í upphafi. Ég nefndi þar nafnið á nefndinni, þar sem verið er að tala um land, og nú er það komið á haf út. Verksvið nefndarinnar nær á haf út nú orðið og lengst út í stöðuvötn. Mér finnst eins og þarna sé verið að auka við verkefni nefndarinnar og það er ekki í samræmi við það að nefndin eigi að ljúka störfum sem allra fyrst, ekki ef verið er að auka við störf hennar. Sérstaklega er verið að auka við störf nefndarinnar þegar verið er að ræða um að rýmka heimildir ríkisins til að fara að nýju í eldri mál sem lokið var. Einnig nefndi ég að hér væri verið að auka óvissu. Tilgangur laganna var að greiða úr óvissu en hér er verið að auka óvissuna þar sem verið er að taka upp eldri mál. Niðurstaðan er sú að öll svæði eru í uppnámi að nýju. Verklok óbyggðanefndar eru ekki fyrirsjáanleg nú fremur en áður með tilkomu útvíkkunar á starfssviði hennar til almenninga stöðuvatna og landsvæða utan strandlengju landsins. Ég efast um að það hafi verið ætlunin í upphafi, eins og ég nefndi, að óbyggðanefnd ætti að fara í slík verkefni sem nú er verið að fela henni, og ég fór einnig í skýringar í minnisblaði óbyggðanefndar þar sem hafsbotn er í sumum tilvikum til úrskurðar í nefndinni en ekki í öðrum tilvikum. Þannig skýrði ég það út að unnt væri að toga orðið land töluvert á haf út. Auðvitað á það við um hafsvæðið í kringum eyjar, hólma, dranga og sker og boða svo framarlega sem þeir koma upp í stórstraumsfjöru.
Ég ætlaði ekki að klára þessa ræðu fyrr en ég væri búinn að ræða örlítið um Jónsbók og helst Grágás og sleppi því tækifæri helst ekki. Mér þykir vænt um gömul lög og ég vil alls ekki að þau hverfi úr lagasafninu nema þau séu beinlínis til óþurftar og helst til tjóns. Ég verð aðeins að setja spurningarmerki við minnisblað óbyggðanefndar. Hvaða tilgang hefur slíkt minnisblað frá óbyggðanefnd? Gætu fullyrðingar og staðhæfingar í minnisblaði óbyggðanefndar reynst nefndinni fjötur um fót síðar meir þegar hún fer að úrskurða um þessi mál eða þegar þau koma inn á hennar borð? Þarna er verið að skýra lög og þarna má finna skýringar hennar á ýmsum hlutum. Ég nefndi áðan orðið land en það gengur kannski lengra en það, það er ýmislegt sem verið er að skýra. Ég sé að nefndin skýrir orðið netlög og viðurkennir það í sínu minnisblaði að það sé ekki eins einfalt og sýnist, heldur hafi ákvæði í Jónsbók og þar áður í Grágás — og ég ætla ekki að lesa það upp hér, ég er með það fyrir framan mig en ætla tímans vegna að sleppa því. Í minnisblaðinu er viðurkennt að þessi dýptarregla Jónsbókar hafi aldrei verið afnumin. Hún hefur aldrei verið afnumin. Samt finnst þetta ákvæði Jónsbókar ekki í lagasafninu, ekki í tölvunni og ekki í lagasafninu eftir 1919 að því er mér skilst. Þetta er ekki byggt á mínum eigin rannsóknum, þetta las ég einhvers staðar. Einnig hefur það komið fram í dómum Hæstaréttar að þetta dýptarviðmið er viðurkennt og ég beini því til forseta að láta það ekki gerast að lagaákvæði falli út úr lagasafni, hvernig sem það gerist, nema þau séu beinlínis felld þaðan út með lagasetningu, að það gerist ekki aftur.
Ég ætla að vitna í hæstaréttardóm frá 1996, bls. 2520:
„Ákvæði 2. kapítula rekabálks Jónsbókar um afmörkun netlaga, sem miðast við sjávardýpi, hafa ekki heldur verið felld úr gildi með ákvörðun löggjafans, (Forseti hringir.) þótt þau hafi hins vegar ekki verið tekin upp í útgáfu lagasafns 1919 …“
Mér finnst bagalegt ef hægt er að hreinsa lagasafnið án atbeina Alþingis.