þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta.
Virðulegur forseti. Mig langar í seinni ræðu minni að koma inn á atriði sem þingmaður Framsóknarflokksins, hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson, minntist á í andsvari við mig áðan. Ég var ekki með frumvarpið við höndina þegar ég kom í andsvör og langar að nýta tækifærið núna til að svara þeirri spurningu betur sem þingmaðurinn setti fram. Hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson hélt því fram að með frumvarpinu væri ekki verið að opna á endurupptöku mála. Mig langar, með textann fyrir framan mig, að lesa það sem segir í 4. gr., með leyfi forseta:
„Við bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Vilji ráðherra auka við kröfur ríkisins í máli sem er til meðferðar hjá óbyggðanefnd getur nefndin heimilað að hinar auknu kröfur komi til úrlausnar ef það verður ekki metið ríkinu til vanrækslu að hafa ekki gert kröfur sínar í einu lagi í öndverðu og hinar auknu kröfur seinka ekki málsmeðferð um of að mati nefndarinnar. Um kynningu á hinum auknu kröfum og kröfulýsingarfrest annarra sem telja til eignarréttinda fer samkvæmt 2. mgr.“
Þetta verður ekki miklu skýrara.
Og áfram segir, með leyfi forseta:
„Nefndinni er heimilt að taka til meðferðar svæði sem áður hafa sætt meðferð hennar, ef hún hefur í úrskurði gert athugasemd við kröfugerð ráðherra. Jafnframt er nefndinni heimilt að taka til meðferðar almenninga stöðuvatna á landinu öllu. Um málsmeðferð fer eftir lögum þessum.“
Fyrir áhugamenn um skýrleika laga verður þetta ekkert miklu skýrara og þarna er kannski komin skýringin á því að þingflokkur Framsóknarflokksins er áhugasamur um að þetta mál gangi í gegn, stuðningurinn virðist byggður á misskilningi.
Áfram segir í greinargerð frumvarpsins um 4. gr., með leyfi forseta:
„Viðbæturnar varða annars vegar möguleika ríkisins til að auka við þjóðlendukröfur undir rekstri mála fyrir óbyggðanefnd og hins vegar lögfestingu sérstakrar heimildar fyrir óbyggðanefnd til að taka til meðferðar svæði sem áður hafa sætt meðferð nefndarinnar, hafi nefndin gert athugasemd við kröfugerð ríkisins þar um, auk almenninga stöðuvatna.“
Nú er hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson ekki í salnum en mikið vildi ég óska þess að hann kæmi í andsvar og spyrði mig aftur út í þetta ef þetta er enn óskýrt. Það er venju fremur skýrt að þarna er verið að opna fyrir þessa endurupptöku sem við í Miðflokknum höfum gert alvarlegar athugasemdir við.
Um málið eins og það liggur fyrir er í sjálfu sér ekki miklu við að bæta. Það er mjög miður að það hafi komið á dagskrá í dag og beri allt þess merki að ríkisstjórnarflokkunum þyki sumum hverjum þægilegt, eða skást, illskást sennilega, að afgreiða málið í eins mikilli kyrrþey og nokkur kostur er á degi þar sem önnur nefndastörf voru trompuð með störfum velferðarnefndar og látin víkja af því að velferðarnefnd var að vinna svo mikilvæg verkefni fyrir ríkisstjórnina sem sneru m.a. að breytingum á reglum um Atvinnuleysistryggingasjóð. Við þetta gerði stjórnarandstaðan engar athugasemdir og studdi raunar að verklagið yrði með þessum hætti. Svo kemur þetta mál af öllum inn. Það kemur á óvart, en það verður þá bara að hafa sinn gang að þetta sé eitt af forgangsmálum Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins. Ekki finn ég þessu neinn stað í stjórnarsáttmálanum þannig að það virðist hafa verið sjálfstæð ákvörðun að fara í þessar breytingar. Og eftir þá þrautagöngu sem landeigendur hafa gengið hér undanfarna tvo áratugi, eða þar um bil, í samskiptum sínum við óbyggðanefnd og ríkið hvað þetta regluverk þjóðlendna varðar er ekki á það bætandi og sporin hræða. Þegar mikilvægur þingmaður Framsóknarflokksins kemur fram við lok 3. umr. og talar um málið af fullkomnum misskilningi blasir við að málið er annaðhvort ekki fyllilega kynnt í þeim þingflokkum sem mest kemur á óvart að styðji það eða þá að hv. þingmenn hafa sett kíkinn fyrir blinda augað. Ég ætla að láta þetta duga í bili. Það kemur á óvart að þingflokkar Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins styðji þetta mál en kannski ekki eins á óvart að þingmenn Vinstri grænna geri það.