150. löggjafarþing — 79. fundur,  20. mars 2020.

atvinnuleysistryggingar og Ábyrgðasjóður launa.

664. mál
[15:07]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Ég ætla ekki að hafa langa ræðu hérna eða þakkalista heldur vísa bara í það sem kom fram fyrr í dag. Vegna þess erindis sem við fengum núna af áhyggjuröddum um réttindi fiskvinnslufólks vil ég árétta að í nefndaráliti er sérstaklega fjallað um réttindi fiskvinnslufólks. Við í nefndinni töluðum um þann hóp sérstaklega og var nefndin fullvissuð um að launafólk sem heyrir undir lög um greiðslur Atvinnuleysistryggingasjóðs vegna fiskvinnslufólks verði ekki verr sett en annað launafólk eftir gildistöku þessa frumvarps. Þessi lög eru um Atvinnuleysistryggingasjóð en það er sérstakur Atvinnuleysistryggingasjóður vegna fiskvinnslufólks og var nefndin fullvissuð um að tryggt yrði með reglugerðarbreytingu að fiskvinnslufólk fengi sömu réttindi og annað launafólk í landinu.

Ég vísa í nefndarálitið sem er auðvitað flókið fyrir marga en vil segja hérna að það er alveg tryggt að vilji löggjafans er að fiskvinnslufólk hafi sömu réttindi og annað launafólk í landinu.