150. löggjafarþing — 79. fundur,  20. mars 2020.

tímabundnar greiðslur vegna launa einstaklinga sem sæta sóttkví.

667. mál
[15:16]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Ég held að við höfum gert mjög góðar en nauðsynlegar breytingar á því frumvarpi sem kom inn í þingið enda gafst stuttur tími. Við náðum að taka inn stærri hópa, þ.e. líka foreldra barna sem þurfa að fara í sóttkví. Við náðum að hækka hlutfall launa hjá sjálfstæðum atvinnurekendum og fleira þannig að ég held að þetta frumvarp sé eins gott og mögulegt er til að tryggja þá sem þurfa að fara í sóttkví og ekki síður tryggja þá sem greiða laun starfsmanna sem eru í sóttkví á þessum undarlegu tímum.

Ég fagna þeirri samstöðu sem augljóslega er að birtast hér í þinginu.