150. löggjafarþing — 80. fundur,  20. mars 2020.

atvinnuleysistryggingar og Ábyrgðasjóður launa.

664. mál
[15:21]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Ég mæli fyrir breytingartillögu við frumvarp til laga um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar og lögum um Ábyrgðasjóð launa er varðar minnkað starfshlutfall. Breytingartillagan er frá mér komin en þess ber að geta að hún er þó með samþykki allrar hv. velferðarnefndar og sömuleiðis áheyrnarfulltrúa. Hún hljóðar svo:

„Á eftir 2. mgr. b-liðar 1. gr. komi ný málsgrein, svohljóðandi:

Skattinum er heimilt, að eigin frumkvæði, að miðla upplýsingum til Vinnumálastofnunar sem varða úrræðið sem kveðið er á um í þessu ákvæði, samanber 4. mgr. 9. gr.“

Með þessu er verið að veita Skattinum heimild til að miðla að eigin frumkvæði upplýsingum sem kunna að koma en þarf ekki að svara spurningum Vinnumálastofnunar. Þetta er mjög mikilvægt og vænti ég þess að það verði samþykkt.