150. löggjafarþing — 82. fundur,  23. mars 2020.

almannavarnir.

697. mál
[15:11]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta. Það er auðvitað orðin þörf á að uppfæra öll lög um almannavarnir. Við höfum fengið mikla reynslu og erum að vinna nýja stefnu í dómsmálaráðuneytinu um almannavarnir eins og þörf er á. Þessi lög mega þó ekki bíða. Í löggjöfinni í dag er talað um hættustund sem hæsta viðbúnaðarstig en almannavarnir vinna í dag eftir stigum alvarleika sem koma fram í reglugerðum. Þá erum við að tala um þau stig sem Íslendingar eru farnir að þekkja af því að við höfum verið á óvissustigi eiginlega stöðugt síðan í desember. Stigin eru alveg upp að neyðarstigi sem fólk upplifir í fyrsta skipti núna á þessum tímum vegna Covid. Neyðarstig er skilgreint þannig að það „einkennist af atburði sem valdið hefur slysum á fólki og/eða tjóni á mannvirkjum. Verkefni á þessu stigi einkennast af tafarlausum aðgerðum til lífsbjargandi aðstoðar og viðleitni til að afstýra fleiri slysum og varna frekara tjóni“. Svo er aðeins nánar um þetta hjá almannavarnadeildinni. Þannig er það skilgreint.

Það er orðin þörf á því að þessi stig komi fram beint í löggjöfinni svo enginn vafi leiki á því að þetta megi virkja þegar um neyðarstig almannavarna er að ræða, sem eru þau stig sem unnið er við í dag þegar ýmislegt kemur upp, eins og hv. þingmaður nefndi, hvort sem það eru snjóflóð, eldgosahætta eða farsótt eins og við glímum við í dag. Það er mikilvægt að hafa þetta skýrt en þetta er eins skýrt og ég tel mögulegt í greinargerð, sem má auðvitað hnykkja á í nefndinni. Það var ekki talið mögulegt að hafa í ákvæði lagafrumvarpsins eitthvert stig sem ekki er skilgreint í lögunum sjálfum.

Ég kem að samráðinu í seinna andsvari.