almannavarnir.
Herra forseti. Ég ætla ekki að lengja þessa umræðu. Ég þakka enn og aftur hæstv. ráðherra fyrir svörin og ætla að fjalla um nokkur atriði, þau sem ég spurði um og eitt eða tvö að auki. Við ræðum hér eitt af þeim lagafrumvörpum sem eru til komin vegna þess ástands sem nú er uppi í samfélaginu og ekki aðeins vegna veirufaraldursins sem við tökumst nú á við heldur er þetta frumvarp einnig til komið vegna nýliðinna atburða í vetur, snjóflóðahættu og eldgosahættu svo eitthvað sé nefnt. Það er því ekki einungis farsóttin sem kallar á þessa breytingu heldur kalla fleiri atburðir vetrarins á breytingu á almannavarnalögum.
Tilgangur frumvarpsins er að auðvelda mönnum vinnu í hættuástandi, sporna við því að það skapist ef unnt er og veita nauðsynlega þjónustu á hættustundu. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að skjóta inn nýrri 19. gr. og að núgildandi 19. gr. verði þá 19. gr. a. Greinin skiptist í þrjár efniseiningar, í fyrsta lagi kveður efni greinarinnar á um þá borgaralegu skyldu starfsmanna opinberra aðila að gegna störfum í þágu almannavarna á hættustundu. Þá segir að opinberum aðilum sé heimilt að fela starfsmönnum tímabundið breyttar starfsskyldur til að sinna verkefnum sem hafa forgang á hættustundu. Loks er kveðið á um að þessir starfsmenn haldi óbreyttum launakjörum þegar slíkt kemur upp á.
Það er sjálfsagt og getur vitaskuld verið nauðsynlegt á hættutímum að allir leggist á eitt við að aðstoða. Ég held að samfélag okkar sé enn þannig að fólk leggi sig fram við að aðstoða náungann og samfélagið ef mikið liggur við. Það breytir því þó ekki að ég hef engar sérstakar athugasemdir við að þetta frumvarp fari í gegn. Ég er með nokkrar athugasemdir, eins og ég nefndi við hæstv. ráðherra áðan, um hugtakið hættustund. Skilgreiningu á því er eftir minni bestu vitund ekki að finna í almannavarnalögum, ekki við fljótlega leit, en þó er oft minnst á það. Ég er ekki þar með að segja að almannavarnaaðilar, lögreglustjórar eða ríkislögreglustjóri, þeir sem stjórna aðgerðum í hvert og eitt sinn, átti sig ekki á því hvenær runnin er upp hættustund. Ég er alls ekki að meina það, ég tel bara að þegar menn ætla að nota heimild til að kveðja fólk til starfa, taka það úr sínum störfum, færa það á milli, hugsanlega milli byggðarlaga, sem ég geri ekki athugasemdir við, verði að vera skýr lagaheimild þar á bak við. Orðalagið um hættustund veldur mér smávegis hugarangri vegna þess að það er alls ekki skýrt. Ég ætla að lesa örlítið úr greinargerðinni, með leyfi forseta:
„Hættustund telst vera fyrir hendi í skilningi þessa ákvæðis þegar ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir hæsta almannavarnastigi …“
Þetta er skiljanlegt, það er neyðarstig. Samkvæmt núgildandi reglugerð um flokkun stiganna er hæsta stigið neyðarstig. Þetta er alveg skýrt. Svo kemur:
„… eða hefur lýst því yfir að það sé yfirvofandi.“
Hvenær er það yfirvofandi? Er þá hættustigið, sem er næsta stig fyrir neðan neyðarstig, nægilegt? Eða þarf ríkislögreglustjóri sérstaklega að lýsa því yfir að neyðarstig sé yfirvofandi? Þetta er mergur málsins sem ég er að spyrja um. Það virðist eins og ekki sé nóg að segja að það sé komið hættustig heldur þurfi ríkislögreglustjóri sérstaklega að lýsa því yfir að hættustundin sé yfirvofandi. Og hvenær verður það? Það er klárlega á neyðarstiginu, en getur það verið á hættustiginu líka? Hvenær þá? Þarf að gera það sérstaklega? Ég held að kannski mætti aðlaga þetta ákvæði, skýra örlítið hvenær þessi hættustund er runnin upp. Hugsanlega gæti þetta skipt máli þegar verið er að kveðja til ótrúlegan fjölda fólks til að framkvæma einhverja vinnu, sem er sjálfsögð, og fara hugsanlega á milli landshluta til að koma í veg fyrir hættu sem gæti skapast. Ég held að nefndin mætti kannski líta á þetta. Ég sá þetta ekki í lögunum sjálfum þó að oft sé í gömlu lögunum talað um hættustund.
Annað sem ég ætla að nefna er þeir aðilar sem helst um ræðir. Þetta getur verið fjöldinn allur af stéttum og opinberu starfsfólki, en auðvitað mæðir mest á lögreglumönnum, og hjúkrunarfólki í tilviki farsótta, en í flestum tilvikum lögreglumönnum auk fjölda annarra. Ég ætla ekki að nefna alla þá aðila. Ég tel mjög mikilvægt að nefndin kalli fulltrúa þessara stétta til samráðs og samtals, sérstaklega þessara tveggja stétta. Kannski má einnig nefna sjúkraliða og fleiri og fá það fólk fyrir nefndina. Þá er ég sérstaklega að tala um það sem ég spurði hæstv. ráðherra um varðandi áhættuna vegna þess að þarna er verið að leggja ákveðnar starfsstéttir í mikla áhættu, eins og er í dag, þegar þeim er teflt fram í þágu okkar allra til að stemma stigu við þessari hættu eða koma í veg fyrir hana og framkvæma ýmis verkefni. Þess vegna er mikilvægt að ræða við þessar stéttir og athuga þeirra sjónarmið varðandi þessa lagabreytingu.
Hæstv. ráðherra talaði um að kannski væri kominn tími til að taka þessi lög til endurskoðunar og ef ég skildi hana rétt er einhver vinna í ráðuneytinu við að fara yfir þau. Hugsanlega er eitthvað fleira þar sem mætti laga í ljósi þess að ítrekað hefur komið upp í vetur að almannavarnakerfið hefur verið virkjað, oftar en áður, vegna atburða af ýmsum tegundum. Það er alveg rétt og ég tek undir með hæstv. ráðherra með það. Ég bendi henni á 20. gr. laganna. Þar held ég að sé eitthvað inni sem hefur jafnvel gleymst að fella brott. Í 11. gr. kemur fram að stjórn aðgerða í héraði eigi að vera í höndum lögreglustjóra í viðkomandi umdæmi. Svo segir í 20. gr. að þegar hætta vofi yfir geti lögreglustjóri eða sýslumaður kvatt hvern fulltíða mann sem tiltækur er til tafarlausrar aðstoðar við störf í þágu almannavarna. Þetta með sýslumennina hlýtur að vera eitthvað gamalt sem þarf að hreinsa út. Þeir gegna ekki beinu hlutverki samkvæmt lögunum lengur nema því sem segir í 20. gr.
Þetta minnir mig á annað. Sýslumönnum og lögreglustjórum fækkaði við það að umdæmin stækkuðu, einnig vegna þess að sveitarstjórnum fækkar. Sveitarstjórnum fækkar fyrirsjáanlega meira á næstu árum þannig að umdæmin og þessar einingar fara stækkandi. Þess vegna fjölgar þeim byggðum og byggðakjörnum í sveitarfélögum og umdæmum sem hafa í raun og veru ekki lögreglustjóra og þar er ekki aðsetur sveitarstjórnar eða aðsetur almannavarnanefndar. Ég bendi hæstv. ráðherra á þetta atriði. Það gerðist í vetur með snjóflóðin. Ég get tekið dæmi af Flateyri, þar er enginn úr þessum þremur stoðum sem ég var að nefna, þ.e. lögreglustjóri, sveitarstjórn eða almannavarnanefnd. Þær stoðir eru ekki staðsettar þar og þannig háttar til víða annars staðar. Er kannski tímabært þegar almannavarnalögin verða endurskoðuð að færa inn í þau einhvers konar ákvæði um að lögreglustjóri geti í þessum tilvikum, af því að nú eru umdæmin orðin mjög stór, kannski eftir ábendingu almannavarnanefndarinnar á staðnum eða í einhverju sveitarfélagi, tilnefnt í því byggðarlagi sem er afskekkt eða án þeirra aðila sem ég nefndi almannavarnatengil eða -fulltrúa sem yrði einhvers konar opinber aðili og tæki við stjórn aðgerða ef viðkomandi byggð einangraðist. Þetta væri hægt að athuga við endurskoðun laganna ásamt því sem ég nefndi um orðalagið í 20. gr., orðalagið með hættustundina og ýmislegt annað sem ég veit að hæstv. ráðherra er örugglega að vinna í.
Auðvitað styð ég þetta frumvarp og markmið þess. Það mega ekki vera einhverjir þröskuldar á vegi okkar þegar við sinnum almannavörnum og þegar hugsanlega liggur mikið við að kalla til fólk til hjálpar og til starfa.