150. löggjafarþing — 83. fundur,  26. mars 2020.

afbrigði.

[13:31]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti hyggst nú leita afbrigða fyrir því að taka megi bæði dagskrármálin á dagskrá en of skammt er liðið frá útbýtingu þeirra. Í ljósi þeirra óvenjulegu aðstæðna sem nú eru uppi hefur forseti óskað eftir því við formenn þingflokka að afbrigðin verði veitt samkvæmt heimild í 1. mgr. 80. gr. þingskapa. Formenn þingflokka hafa tjáð forseta að fyrir liggi samþykki þeirra fyrir hönd þingflokka sinna um að bæði dagskrármálin megi koma á dagskrá.

Afbrigðin skoðast því samþykkt án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.