150. löggjafarþing — 84. fundur,  30. mars 2020.

aðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna heimsfaraldursins.

[10:13]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Loga Einarssyni fyrir fyrirspurnina en ég ætla hins vegar ekki að fara í krytur um það hver sagði hvað fyrst. Ég hef litið á það sem samvinnuverkefni í nefndum þingsins að vinna úr þeim tillögum sem stjórnvöld eru að vinna gríðarlega hratt og leggja inn til þingsins. Ég ítreka það sem ég sagði áðan, í svari mínu við hv. þm. Sigmund Davíð Gunnlaugsson, að ég fagna því hvernig vinna í nefndum hefur gengið og held að óþarfi sé að fara í krytur um það.

Hv. þingmaður nefnir sérstaklega að aðgerðir stjórnvalda séu ekki nægjanlegar. Það hefur legið fyrir frá upphafi að við höfum sagt mjög skýrt að þær munu verða endurmetnar mjög reglulega einmitt vegna þess að óvissan er mikil. Það er ekki nokkur ríkisstjórn núna sem er að eiga við þennan faraldur sem getur sagt með vissu: Við erum komin með endanlegan pakka. Það er bara ekki þannig í raunveruleikanum.

Við kynntum okkar aðgerðir og þær skiptast í bein ríkisútgjöld, brúarlán til atvinnulífs og síðan færslu fjármuna til fólks og fyrirtækja. Ég vil ítreka það að sú leið sem við getum kallað hlutastarfa- eða hlutabótaleið er líklega sú mikilvægasta fyrir fólkið í landinu núna vegna þess sem er að gerast í tekjufalli hjá fyrirtækjum. Mikilvægasta verkefnið okkar er að tryggja það að fólk haldi afkomu sinni með því að halda vinnunni, með því að halda ráðningarsambandi við fyrirtæki. Hvernig við setjum fram okkar aðgerðir er ekki ósvipað því sem nágranna okkar á Norðurlöndum er að gera en þó er framsetningin ólík, t.d. tiltaka Danir sérstaklega áhrif sveiflujafnara á hagkerfið upp á 2,5% af landsframleiðslu sem við gerum ekki þó að sjálfvirkir sveiflujafnarar á Íslandi séu mjög miklir, þ.e. annars vegar vegna tekjufalls og hins vegar vegna aukinna útgjalda.

Hv. þingmaður nefnir sérstaklega atvinnuleysisbætur. Eins og hv. þingmaður þekkir vel þá var það sú sem hér stendur sem beitti sér fyrir því að þær yrðu hækkaðar árið 2018 í samvinnu við verkalýðshreyfinguna ásamt því að greiðslur úr Ábyrgðasjóði launa voru þá hækkaðar.