150. löggjafarþing — 84. fundur,  30. mars 2020.

aðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna heimsfaraldursins.

[10:15]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Við erum ekki að fjalla um sagnfræði og það var afskaplega góð og brýn aðgerð. En ég spyr núna, vegna sögulega lágra atvinnuleysisbóta á þessum erfiðu tímum, hvort komi til greina að hækka þær frekar. Þá beindi ég líka spurningu til hæstv. ráðherra um barnabæturnar, vaxtabætur og húsnæðisbætur sem eru mjög brýnar núna til að mæta erfiðum aðstæðum. Auðvitað svipar aðgerðum okkar til nágrannaríkjanna að einhverju leyti þótt við séum auðvitað heldur mildari í okkar skrefum. Þó er sá munur á að við erum að eyða of löngum tíma í nefndum til að bæta frumvörpin sem koma ekki nógu góð þangað inn, einfaldlega vegna þess að við förum ekki þá leið Dana og Norðmanna að kalla stjórnarandstöðuna strax að borðinu og láta hana vinna aðgerðirnar með. Að því sögðu er ég auðvitað viljugur til þess að við vinnum málefnalega að öllum umbótum á öllum þeim aðgerðum sem boðaðar verða, en ég ítreka spurninguna: Verður ráðist í þær aðgerðir sem ég spurði um?