aðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna heimsfaraldursins.
Herra forseti. Þegar rykið verður sest getum við farið yfir samanburð á leiðum Norðurlandanna, til að mynda það vald sem forsætisráðherra Noregs er nú kominn með til aðgerða sem er fáheyrt í norskri sögu. Ég velti því fyrir mér þegar þetta verður borið saman, eins og ég segi þegar við getum farið að líta í baksýnisspegilinn, hvernig við erum að umgangast þingræðið og lýðræðislegar hefðir milli ólíkra Norðurlanda. Ég held að Ísland muni koma vel út úr þeim samanburði.
Hv. þingmaður nefnir sérstaklega barnabætur, húsnæðisstyrk og atvinnuleysisbætur. Því er til að svara að við erum auðvitað í dag að fara að afgreiða þennan sérstakra barnabótaauka sem ég tel að skipti verulegu máli til að koma til móts við barnafólk fyrir utan að núverandi ríkisstjórn hefur að sjálfsögðu hækkað barnabætur verulega við afgreiðslu tvennra síðustu fjárlaga. Við höfum sömuleiðis gefið út yfirlýsingu um að við viljum fara heildstætt yfir stuðning við barnafólk á Íslandi í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins og var sú yfirlýsing gefin núna við undirritun kjarasamninga BSRB við ríki og sveitarfélög.
Þá vil ég sérstaklega nefna að við höfum að sjálfsögðu styrkt (Forseti hringir.) almenna íbúðakerfið og erum enn að vinna samkvæmt yfirlýsingu okkar í lífskjarasamningnum í að finna leiðir til að styðja bæði leigjendur og vernda réttarstöðu þeirra og styðja ungt fólk frekar til kaupa á húsnæði. Við höfum ekki ákveðið að kynna aðgerðir enn þá en við erum að vinna samkvæmt þessum leiðarljósum.