150. löggjafarþing — 84. fundur,  30. mars 2020.

forgangsröðun í aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar.

[10:18]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Við ræðum hér á eftir fjárfestingarátak ríkisstjórnarinnar vegna efnahagslegra áhrifa heimsfaraldurs kórónuveiru. Aðgerðunum hefur hæstv. forsætisráðherra lýst sem fyrsta áfanga í stærra verkefni þannig að spurningar mínar til hæstv. ráðherra eru tvíþættar. Í fyrsta lagi snúa þær að aðgerðapakkanum sem þingið mun afgreiða hér á eftir og í öðru lagi snúa þær að aðgerðum framtíðarinnar.

Fyrstu viðbrögð ríkisstjórnar hæstv. forsætisráðherra voru að fjárfesta hlutfallslega langmest í malbiki og steypu en 70% af fjárfestingarátaki ríkisstjórnarinnar fara í vegagerð og byggingarframkvæmdir. Ég undrast þessa forgangsröðun hæstv. ráðherra vegna þess að hún er formaður flokks sem kallar sig grænan og hæstv. ráðherra lýsir sér sem umhverfissinna en í ríkisstjórn undir hennar forystu fara 70% fjármagnsins í steypu á meðan aðeins um 3% fjármagnsins fara samanlagt í orkuskipti, skógrækt, landgræðslu og endurheimt votlendis. Hvers vegna leggur hæstv. ráðherra svona afskaplega litla áherslu á grænar lausnir?

Ég vil líka spyrja ráðherra, sem hefur lýst sér sem femínista, hvort kynjasjónarmið hafi verið höfð í huga við forgangsröðun verkefna í fjárfestingarátakinu og sömuleiðis hvort hæstv. ráðherra telji að þetta átak muni reynast atvinnuskapandi fyrir konur til jafns við karla.