forgangsröðun í aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar.
Herra forseti. Já, ég er umhverfissinni og femínisti. Það er rétt hjá hv. þingmanni eins og sést á verkum mínum í stjórnmálum. Ég vil segja það að þegar við kynntum aðgerðir okkar voru leiðarljósin allnokkur. Í fyrsta lagi að verja afkomu fólks og fyrirtækja, eins og ég fór ágætlega yfir í svari við fyrirspurn hv. þm. Loga Einarssonar, og það erum við að gera með hlutabótunum. Það skiptir auðvitað máli fyrir bæði karla og konur, svo að það sé sagt, og það sem við höfum verið að ræða, kannski ekki mikið í þessum þingsal en í opinberri umræðu, um að ekki sé verið að fara í manngreinarálit hvað varðar fyrirtæki — nei, það er ekki verið að gera vegna þess að það skiptir máli að við gerum ekki upp á milli launafólks í landinu, að allir eigi aðgang að þessari leið, að við séum að tryggja afkomu fólks í raun og sann óháð því hvar það vinnur.
Í öðru lagi vil ég segja að fjárfestarátakið mótast að sjálfsögðu af því hvað er hægt að gera innan þessa árs. Fram undan er annað fjárfestingarátak 2021–2023 og þar munum við auðvitað sjá aðeins annars konar áherslur því að þar getum við horft meira fram í tímann. Staðreyndin er sú, eins og ég fór yfir í svari við fyrirspurn hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, að við þurfum auðvitað líka að tryggja að peningarnir nýtist innan ársins. Til að mynda ef við tökum rannsóknir og nýsköpun þá tekur ákveðinn tíma að sækja um slík verkefni, að meta þau með faglegum hætti. Hæstv. menntamálaráðherra hefur upplýst mig um að hún telji sig treysta sér til þess að nýta þessa peninga á þennan hátt og mun þá væntanlega nýta ákveðin tæki sem eru hraðvirkari en beinar úthlutanir, eins og markáætlun sem byggist á faglegum sjónarmiðum og er innan Rannsóknasjóðs. En þarna erum við að meta í raun og veru hvernig við getum látið fjármunina vinna innan ársins. Hér er sömuleiðis verið að verja fjármunum í orkuskipti þannig að öll þessi verkefni skapa viðspyrnu.
Að lokum vil ég segja, af því hv. þingmaður spyr um kynjasjónarmið, að þriðja leiðarljósið í aðgerðum okkar er að verja grunnstoðirnar. Og af því að hv. þingmaður er að hugsa um kynjasjónarmið þá er það svo að hvort sem við lítum til heilbrigðiskerfis eða menntakerfis (Forseti hringir.) þá erum við auðvitað að reka ríkissjóð með þeim hætti að við ætlum að verja þær grunnstoðir, sem er risastórt kynjaspursmál eins og ég þekki mætavel frá síðasta hruni.