greining Covid-19.
Virðulegur forseti. Það er svo sem ekki miklu við það að bæta sem áður kom fram í svari mínu. Ég árétta að um leið og við erum með tölfræðiteyminu okkar að uppfæra spálíkanið frá degi til dags þá erum við líka að skoða þessar aðgerðir, þ.e. að mæla mótefni. Ég held að það gæti verið einstakt tækifæri fyrir Ísland að standa fyrir slíkri aðgerð, sem væri gerð með mjög breiðum og afgerandi hætti, ekki með heimaprófum heldur þannig að við sæjum hver staðan væri í samfélaginu almennt, og svo líka hjá hverjum og einum. Það gætu verið fólgin í því ákveðin tækifæri sem lúta að því hvernig við stígum skrefin þegar við förum að sjá faraldurinn gefa eftir, sem vonandi verður fyrr en seinna, og þá skiptir mjög miklu máli að við séum meðvituð um það hvernig sé skynsamlegast að stíga skrefin inn í lífið aftur.