150. löggjafarþing — 84. fundur,  30. mars 2020.

umfang og samstaða um aðgerðir við faraldrinum.

[10:34]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Þorsteini Víglundssyni fyrirspurn og ítreka að samskipti við alla stjórnarandstöðuflokka, þar með talið Viðreisn, hafa verið með besta móti. Ég hef skynjað raunverulegan áhuga á því að ná samstöðu í því að takast á við þennan vágest, bæði á sviði heilbrigðisviðbragða og á sviði efnahagsmála.

Hv. þingmaður ræðir hér umfang aðgerða. Eins og ég fór stuttlega yfir áðan í öðru svari við hv. þm. Loga Einarsson tel ég Ísland koma vel út ef við lítum til að mynda á lista AGS þar sem er verið að bera saman efnahagsaðgerðir ríkja. Vissulega er umfang aðgerða í Bretlandi, Bandaríkjunum og Þýskalandi meira en horfum líka á þá innviði sem þessi lönd, sérstaklega Bandaríkin, eru með fyrir þegar kemur að heilbrigðiskerfinu. Þá segi ég: Þá er ég mjög ánægð með hið íslenska heilbrigðiskerfi og hvernig það hefur byggst upp og ég er viss um að hv. þingmaður er mér sammála um það.

Ég minni líka á það sem ég benti áðan á í svari við fyrirspurn hv. þm. Loga Einarssonar að Danir tiltaka t.d. sérstaklega áhrif sveiflujafnara á hagkerfið þegar þeir kynna sínar aðgerðir sem við gerum ekki þannig að framsetning þessara aðgerða er ekki að öllu leyti eins. Ef við horfum bara á þá ríkisfjármálapakka sem G-10 ríkin hafa tilkynnt eru þeir yfirleitt um 1–3% af landsframleiðslu í beinum útgjöldum eða skattalækkunum. Á Íslandi er þessi þáttur aðgerðanna tæp 2%. Frestun skattgreiðslna og lánveitingar til fyrirtækja eru síðan almennt önnur 1–2%. Eins og ég sagði skera Bandaríkin sig úr hvað stærð pakka varðar en þar er bæði annars konar heilbrigðiskerfi og sjálfvirkir sveiflujafnarar minni. Ef við erum í þessum samanburði, og ég held að það sé í sjálfu sér áhugavert fyrir þingið að láta vinna slíka raunsamanburð því að það er ekki að öllu leyti sambærilegt milli landa, hvað er tekið með og hvað ekki, tel ég að okkar pakki komi svo sem ágætlega út. Þar með er samt ekki sagt að við þurfum ekki að gera meira eins og við höfum sagt. Það held ég að við séum öll meðvituð um í þessum sal. Þær aðgerðir sem klárast vonandi hér í dag eru ákveðinn áfangi, en (Forseti hringir.) í núverandi óvissu held ég að við séum öll sammála um að líklega mun meira þurfa að koma til.