umfang og samstaða um aðgerðir við faraldrinum.
Forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra svarið. Ef við förum í þennan alþjóðlega samanburð er líka ágætt að hafa í huga að 70% af aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar eru lánveitingar til atvinnulífsins og frestun á greiðslum. Það eru aðeins 30% sem mætti kalla beina innspýtingu í hagkerfið og þess vegna er mikilvægt að meira sé gert. Ítrekað hefur verið sagt í þessum sal að betra sé að gera meira en minna. Ég segi: Núna þarf að gera meira en minna af því að viðspyrnan þarf að eiga sér stað núna. Við þurfum að ná framkvæmdum og innspýtingu inn í atvinnulífið fyrir sumarið, ekki að koma fram með það í fjármálaáætlun eða fjárlögum ríkisstjórnar næsta haust.
Ég brýni hæstv. forsætisráðherra og ríkisstjórn hennar til að taka í útrétta hönd minni hlutans. Í þessum sal er ríkur vilji til að gera það sem gera þarf. Það skiptir ekki máli hvaðan góðar hugmyndir koma, það eina sem skiptir máli er að við lágmörkum það efnahagslega tjón sem við erum að verða fyrir, að við lágmörkum atvinnuleysi, þegar fólk tapar lífsviðurværi sínu þúsundum saman. Það sem við þurfum að horfa á og einblína á saman er hvernig við getum komið (Forseti hringir.) í veg fyrir frekara tjón.