umfang og samstaða um aðgerðir við faraldrinum.
Herra forseti. Ef við ræðum um útréttar hendur, bæði meiri hluta og minni hluta á Alþingi, höfum séð fyrirmyndarvinnu í nefndum þingsins. Ég er búin að fylgjast með þeirri vinnu af hliðarlínunni og mér finnst hún hafa verið góð. Mér finnst góðar þær viðbætur sem þar hafa komið fram, til að mynda í fjárfestingum. Ég nefni bara eitt lítið dæmi sem er viðbót við fjárfestingarátak upp á 100 millj. kr. í Nýsköpunarsjóð námsmanna, ein hagkvæmasta og besta leiðin til að skapa sumarstörf sem skapa þekkingu. Ég veit að þeir sem reka nýsköpunarfyrirtæki og hafa nýtt þessa námsmenn á undanförnum árum eru mér sammála. Þetta er dæmi um góða viðbót sem bætist við í þinginu. Auðvitað á sú viðbót rætur að rekja til gamalla hugmynda. Ég stóð sjálf í því að efla þennan sjóð 2009–2010.
Ég ítreka að sjálfvirkir sveiflujafnarar eru fyrirferðarmiklir hér en ég vil líka segja, af því að hv. þingmaður nefnir sérstaklega það sameiginlega markmið okkar að tryggja atvinnu fólks, (Forseti hringir.) að við erum mjög meðvituð um það að að öllum líkindum mun þurfa að framlengja hlutabótaleiðina. Við þurfum að sjálfsögðu að meta líka hvernig hún hefur reynst. Við erum meðvituð um að þetta er einn áfangi í dag og að meira mun koma til. Það skiptir máli sem hver og einn hefur verið að segja í þessum sal.