fjáraukalög 2020.
Herra forseti. Við erum að greiða atkvæði um nýsköpunartillögu stjórnarandstöðunnar nema ég sé á röngum stað. Ég vona a.m.k. að við séum að því og ætla að tala um þá tillögu. Stjórnarandstaðan öll í heild sinni hefur sögulega sett saman mjög metnaðarfullar tillögur á sviði nýsköpunar, rannsókna og skapandi greina. Þetta er stærsti hluti breytingartillagna okkar. Hér leggjum við til að hækka þak á endurgreiðslum rannsókna- og þróunarkostnaðar sem mun flytja fjölmörg verkefni til landsins. Við leggjum til næstum því að tvöfalda Tækniþróunarsjóð miðað við það sem stefndi í í óbreyttum fjárlögum. Við leggjum til aukið fjármagn í Rannsóknasjóð og Innviðasjóð. Við erum að leggja til hálfan milljarð í menningu, íþróttir og listir. Þar blasir við gríðarlegt tekjutap vegna faraldursins. Við erum að leggja til fjármagn til loftslagsmála og grænmetisræktar og sömuleiðis leggjum við til tímabundna niðurfellingu eða lækkun á tryggingagjaldi til lítilla fyrirtækja.
Þetta eru flottar og metnaðarfullar tillögur, herra forseti, og það væri virkilega grátlegt að sjá þær felldar hér í dag, bara vegna þess að þær koma frá stjórnarandstöðunni.