150. löggjafarþing — 85. fundur,  30. mars 2020.

afgreiðsla mála.

[20:34]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti vill undir lok þessa óhefðbundna þingfundar færa öllum hv. þingmönnum og sérstaklega formönnum þingflokka þakkir fyrir mikið og gott samstarf. Við höfum náð á þessum óvenjulega þingfundadegi að ljúka því mikla verki sem við höfum hér afgreitt við afar óhefðbundnar aðstæður.

Forseti vill einnig og ekki síður færa starfsfólki Alþingis sérstakar þakkir fyrir gríðarlega mikið starf sem unnið hefur að því undanfarna daga að gera afgreiðslu þessara viðamiklu mála mögulega á jafn skömmum tíma og raun ber vitni.