150. löggjafarþing — 88. fundur,  14. apr. 2020.

framboð og kjör forseta Íslands og kosningar til Alþingis .

719. mál
[15:48]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Atkvæðagreiðslur fara fram með sama hætti og að undanförnu. Forseti mun láta hverja atkvæðagreiðslu standa yfir á meðan þingmenn koma hver á fætur öðrum inn í þingsalinn til að greiða atkvæði og geta þeir þannig gætt fjarlægðar á milli sín.