breyting á ýmsum lögum vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir svarið. Ég er enn þá svolítið föst í hjúskaparmálunum af því að ég held að við verðum að fara að hysja upp um okkur þar, þ.e. í hjúskapar- og sifjamálum. Biðlistar hjá sýslumannsembættinu á höfuðborgarsvæðinu eru þess eðlis ekki hafa verið tekin fyrir ný mál er varða umgengni, forsjá og lögheimili barna síðan 8. júlí 2019. Engin ný mál hafa verið tekin fyrir. Þá erum við að tala um að þeir sem komu þangað inn fyrir 8. júlí, þar sem pantaður var tími af því að það verður að fá tíma hjá fulltrúa til að hefja málið, eru ekki enn búnir að fá fyrsta viðtal. Þarna eru lítil börn sem oft og tíðum fá ekki umgengni við annað hvort foreldri sitt, ekki búið að taka ákvörðun um forsjá eða lögheimili og þess háttar. Þá hefur rafræn stjórnsýsla (Forseti hringir.) eins og núna er verið að fjalla um auðvitað einhver áhrif. En þegar heilt ár tekur að klára rafrænar þinglýsingar (Forseti hringir.) veltir maður fyrir sér (Forseti hringir.) hvort okkur sé þetta um megn eða hvort við þurfum kannski að setja aukna fjármuni til embætta sýslumanna.