breyting á ýmsum lögum vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.
Herra forseti. Ég hjó eftir því hjá hæstv. dómsmálaráðherra að þetta frumvarp hefði verið unnið í miklum flýti. Ég sé líka í greinargerð að ekki hafi unnist mikill tími til að hafa samráð. Nokkrir aðilar eru nefndir en ekki t.d. lögreglan eða ríkissaksóknari eða neinn í þeim geira heldur einungis dómstólarnir og einhverjir aðrir aðilar. Ég geri ekki athugasemdir við allar greinar þessa frumvarps eða hef spurningar um þær allar. Ég er aðallega með í huga 5. og 6. gr. og síðan 10. og 12. gr. Það er of langt mál að fara í þetta allt saman í einu andsvari en ég ætla að byrja á 10. og 12. gr., sem aðrir hafa reyndar komið að.
Hæstv. dómsmálaráðherra nefndi áðan að þetta væri einungis hugsað í fyrstu fyrirtöku. Það er auðvitað ekki rétt. Í textanum er einungis talað um fyrirtöku. Í öllum nauðungarsölulögunum er alltaf talað um fyrirtöku, alveg sama hvort það er fyrsta fyrirtaka, önnur o.s.frv., það er alltaf talað um fyrirtöku samkvæmt ákveðnum greinum. (Gripið fram í.) Þá verður að laga textann í frumvarpinu ef meiningin er sú að þetta eigi einungis við um fyrstu fyrirtöku samkvæmt 21. gr. nauðungarsölulaga. Þá verður að taka fram og þá verður að laga þetta. Það veldur mér auðvitað áhyggjum ef vinnubrögðin eru svona.
Ég var lengi í þessum geira, áratugi, og man aldrei eftir miklum mannfjölda í þessum fyrirtökum. Spurning mín til hæstv. ráðherra er því: Hvað knýr ríkisstjórnina til að fara fram með þessi ákvæði, þá á ég við 10. og 12. gr., á þessum tímum? (Forseti hringir.) Hvað knýr ríkisstjórnina til að koma fram með þetta á veirutíma? Hvað knýr svo mikið á um að gera þetta svona, með þeim handarbakavinnubrögðum sem ég hef bent á? Ég gæti bent á fleira. Hvað knýr ríkisstjórnina til að koma með þetta frumvarp núna, 10. og 12. gr., á þessum tímum?