breyting á ýmsum lögum vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.
Virðulegur forseti. Ég verð að byrja á að leiðrétta það sem hv. þingmaður segir um mín orð og hvernig hann túlkar þau. Ég sagði „í upphafi“, ekki við uppboðið sjálft heldur fyrirtökurnar og aðdraganda þeirra. Það er þar sem þetta gildir, ekki við uppboðið sjálft, þar er ekki verið að koma á fjarfundabúnaði.
Hvað hæstv. ráðherra eða ríkisstjórnin eigi við með því að koma með þetta núna? Það er bara verið að reyna að gera sýslumönnum kleift að vinna vinnuna sína. Það er einungis verið að leggja það til að koma á fjarfundabúnaði, rafrænum eyðublöðum og meiri rafrænni stjórnsýslu á meðan hér gilda einhverjar takmarkanir í samskiptum, um fjarlægðir og annað. Það er einungis verið að leggja það til og engar aðrar efnislegar breytingar eru í frumvarpinu.
Það er algjörlega fráleitt að hv. þingmaður saki mann um eitthvað annað, um að maður ætli að lauma einhverju öðru inn. Hér er um rafræna stjórnsýslu að ræða, að reyna að létta á kerfinu, að reyna að gera það rafrænt svo aðilar eigi betri möguleika. Það er verið að passa að tímatakmarkanir renni ekki út, verið að lengja leyfi svo ekki þurfi að koma og sækja um þau ef ekki er hægt að framfylgja þeim meðan á þessu stendur. (Gripið fram í: Það er verið að greiða götu kröfuhafa.) Það er alls ekki verið að greiða götu eins eða neins heldur setja alla við sama borð og gera sýslumönnum mögulegt að vinna vinnuna sína.