breyting á ýmsum lögum vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.
Hæstv. forseti. Það sem býr að baki er að gera okkur kleift að fylgja þeim fyrirmælum sem hafa verið gefin vegna þess faraldurs sem geisar hér. Þau samkomubönn og þær fjarlægðartakmarkanir sem uppi eru krefjast þess að við bregðumst við, að við drífum í rafrænni stjórnsýslu og fækkum komum til sýslumanns svo að þar sé ekki kraðak af fólki að sækja sér alls konar þjónustu sem væri hægt að sækja rafrænt. Það er einungis það sem mér liggur á hjarta og það sem þetta frumvarp snýst um. Það er ekki verið að liðka til fyrir einum né neinum umfram annan. Það er einungis verið að bæta við rafrænni þjónustu í öllum þeim málsmeðferðum þar sem það er mögulegt og þeim fjölda laga og stofnana sem undir mig heyra. Það er það sem þetta frumvarp snýst um.