breyting á ýmsum lögum vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að nefna að allt í aðgerðum stjórnvalda vegna Covid miðar að því að setja upp varnir vegna sóttvarna auðvitað fyrst og fremst, en síðan að vernda heimilin, fólk og störfin og síðan viðspyrnu til að búa til ný störf og efla aftur gang mála. Þarna kemur ýmislegt til skoðunar. Það verða fleiri efnahagsaðgerðir og ýmsar aðrar aðgerðir kynntar á morgun hjá ríkisstjórninni. Þar er verið að skoða ýmis mál en mikilvægt er að við setjum það kannski ekki saman við það sem við erum að gera með þessu frumvarpi. Ég hef margoft sagt það hér á síðustu mínútum af hverju það einskorðast við gerðarbeiðanda. Það er af því að hann hefur mætingarskyldu við fyrirtöku en ekki aðrir. Það er þess vegna sem greinin er með þessum hætti. Þeir sem hafa verið í þessu skilja að þetta á einungis við um fyrirtöku beiðna en ekki uppboð á eign og er — ég get greinilega ekki sagt það nógu oft — einungis til þess að einfalda sýslumanni að fylgja fyrirmælum vegna Covid og þeim ströngu takmörkunum sem uppi eru og verða áfram um einhvern tíma, þó að við munum sjá afléttingar á þeim takmörkunum fljótlega.