afbrigði.
Svo háttar til um 2. til og með 7. dagskrármálið að of skammt er liðið frá útbýtingu þeirra eftir almennum reglum. Málin eru framkomin eftir 1. apríl og ekki er liðinn sá frestur sem 3. mgr. 37. gr. þingskapa áskilur, þ.e. svokölluð fimm daga regla. Þá eru ekki liðnir tveir dagar frá útbýtingunni eins og áskilið er í 1. mgr. 37. gr. þingskapa.
Þar sem samkomulag er milli þingflokka um að málin komist á dagskrá lítur forseti svo á að afbrigðin séu samþykkt án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum við því.