150. löggjafarþing — 92. fundur,  22. apr. 2020.

nefnd til að fylgjast með upplýsingaóreiðu.

[10:36]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að vekja máls á þessu mikilvæga málefni sem við höfum reyndar rætt nokkrum sinnum í þingsal. Ég veit þó ekki hvort hv. þingmaður hefur verið í þeirri umræðu. Ég vil byrja á að segja að þjóðaröryggisráðið fundaði reyndar um kórónuveirufaraldurinn í upphafi hans og fór yfir möguleikana í stöðunni og þróun hans í Kína þannig að það er ekki rétt að þjóðaröryggisráð hafi ekki fundað um faraldurinn eins og hv. þingmaður hélt fram.

Það að þessi hópur hafi verið stofnaður er ekkert sérstakt í alþjóðlegu samhengi þar sem upplýsingaóreiða er eitt af því sem hvert einasta samfélag er að fjalla um, til að mynda á vettvangi þjóðaröryggisráða eins og við erum að gera með því að setja niður þennan hóp. Það er mjög áhugavert viðfangsefni að skoða það og ég er sammála og tek undir með hv. þingmanni að upplýsingamiðlun Almannavarna og sóttvarnayfirvalda á Íslandi hefur verið til fyrirmyndar. Það hefur verið mikilvægt að ýmsar þeirra spurninga sem spurt hefur verið á þeim blaðamannafundum hafa orðið til þess að það hefur verið ákveðinn farvegur fyrir almenning til að koma spurningum á framfæri í gegnum fjölmiðla sem hafa svo spurt þeirra áfram á þessum fundum. Hins vegar sjáum við ýmis dæmi, til að mynda í nágrannaríkjum, um ýmiss konar fréttir um Covid-19 sem ekki standast skoðun.

Er eðlilegt að við tökum þátt í því alþjóðlega samtali og kortleggjum hvernig því er háttað á Íslandi? Já. Er eðlilegt að það sé gert á vettvangi þjóðaröryggisráðs? Það tel ég vera. Er þetta nýtt umfjöllunarefni? Nei. Þjóðaröryggisráð stóð, í samvinnu við ýmsa aðila í samfélaginu, þar á meðal stjórnmálaflokkana, fyrir sérstakri málstofu um fjölþáttaógnir fyrr á þessu ári þar sem var haldin vinnustofa um upplýsingaóreiðu. Þar ríkti nokkurn veginn samhugur um að mikilvægt væri að íslensk stjórnvöld stæðu sig betur í að kortleggja þessi málefni á Íslandi.