150. löggjafarþing — 92. fundur,  22. apr. 2020.

staða sveitarfélaga.

[10:45]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Ég geri mér grein fyrir því að sveitarfélögin eru misjafnlega sett en okkar bíður engu að síður það mikilvæga verkefni, þegar þessu er lokið, að endurhugsa tekjuskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga vegna þess að rekstur þeirra flestra er í járnum og t.d. vantar 4–5 milljarða inn í grunninn fyrir rekstur öldrunarþjónustu sem mörg sveitarfélög reka. Ég vil ekki taka undir með hæstv. ráðherra þegar hann segir að það taki af sveitarstjórnarfólkinu eða sveitarfélögum mikið af þeim skyldum sem á þeim hvíla með þessum 1,5 milljörðum. Margt af því er gott, en hluti af þeim fjármunum fer t.d. í sumarstörf námsmanna, ef ég skil rétt. Það er ekkert endilega hlutverk sveitarfélaga að sjá til þess frekar en ríkisins en það er hins vegar brýnt engu að síður. Noregur er til viðmiðunar að láta 90 milljarða íslenskra króna beint til sveitarfélaga fyrir utan aðrar aðgerðir. Það eru u.þ.b. 6,5 milljarðar íslenskra króna. Hvenær megum við eiga von á svona beinum framlögum?