staða sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Eins og ég kom inn á áðan er staðan ólík og það eru til sveitarfélög sem hafa verið að skila allt að kannski milljarði í hagnað á undanförnum árum. Eigum við að fara að deila sömu tölunni á alla? Það hefur komið slík tillaga fram frá einum landshlutasamtökum sem hefur verið til umfjöllunar í fjölmiðlum. Það myndi þýða að sveitarfélög sem hafa kannski verið með uppsafnaða 5, 6, 7 milljarða í hagnað á síðustu tíu árum treysta sér ekki í að fara í gegnum hugsanlega milljarðataprekstur á næsta ári á meðan tekjuhrun er algert hjá öðrum sveitarfélögum. Þess vegna erum við að greina þennan vanda.
Ég var ekki að vísa til 1,5 milljarða í úrræði á vinnumarkaði til starfsnáms eða slíks. Ég var að tala um 600 milljónir sem færu í íþróttir og tómstundir barna, 450 milljónir til viðkvæmra hópa sem við höfum verið að greina með sambandinu og félagsmálaráðuneytið hefur stýrt með sveitarstjórnarráðuneytinu. Við höfum vaktað núna í fimm vikur hvaða hópar það eru sem þurfa á verulegri aðstoð að halda. Þetta eru 1,5 milljarðar sem við erum að breyta í fasteignasjóðnum til að geta tekið betur utan um málefni fatlaðs fólks, bæði innan sveitarfélaganna og til að fara í framkvæmdir varðandi aukið og betra aðgengi fyrir alla. (Forseti hringir.) Það eru svona hlutir sem við erum að greina með sveitarfélögunum og við munum halda því áfram og ég er sammála hv. þingmanni, það þurfum við að gera.