stuðningur við sveitarfélögin.
Herra forseti. Í aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar sem var kynntur í gær er að finna upplýsingar um sérstakan stuðning við sveitarfélög. Þar sést eins og annars staðar þar sem aðgerðapakkinn kemur við sögu, í ljósi þeirrar stöðu sem við erum í, að ekki er hægt að hjálpa öllum eins mikið og þarf. Þeim mun mikilvægara er gegnsæið annars vegar og hins vegar rökstuðningurinn sem þarf að liggja fyrir þegar tilteknar ráðstafanir eru kynntar. Þegar skoðaðar eru sértækar aðgerðir til stuðnings sveitarfélögum stingur í augun að stærsta sveitarfélagið virðist bera skarðan hlut frá borði, a.m.k. í þessari umferð. Það er það sem mig langar að spyrja hæstv. ráðherra nánar út í.
Fjárfestingarsjóður sveitarfélaga fær þarna einhverja innspýtingu í gegnum jöfnunarsjóð til að vega a.m.k. að hluta til á móti tekjutapinu. Eins og við vitum er Reykjavík ekki sveitarfélag sem fær mikið úr sjóðnum. Enn fremur er Reykjavík ekki í 3. lið stuðningsins sem er stuðningur við viðkvæm svæði og raunverulega má segja að megninu af aðgerðum á sveitarstjórnarstigi sé beint að landsbyggðinni. Ég spyr því hæstv. ráðherra: Hvernig á að tryggja hag Reykjavíkur? Mesta atvinnuleysið verður á höfuðborgarsvæðinu, í Reykjavík samkvæmt höfðatölu, og hlutfallslega mjög hátt þó að Suðurnesin séu mögulega undanskilin þar. Síðan eru áhöld um hvort Suðurnesin teljist til höfuðborgarsvæðisins en það er líka talað um sérstakan stuðning við þau. Við getum tekið umræðu um hvort hann sé nægur eða ekki en þau fá a.m.k. sérlið.
Í Reykjavík eru stærstu fyrirtækin í ferðaiðnaðinum og þar er líka mjög fjölbreyttur hópur sem mun þurfa félagsleg úrræði þannig að þetta er mikið högg. Það er alveg ljóst að Reykjavík er ætlað að keyra áfram með fullri viðspyrnu og sinna þeim félagslegu skyldum sem henni er ætlað að sinna og hefur gert með ágætum, veitir til þess milljörðum á sama tíma og tekjur borgarinnar dragast saman um tugi milljarða, og ég velti fyrir mér hvar íbúar Reykjavíkur séu í þessum pakka. Ég veit að það á að taka fyrir málefni sjóðsins og sveitarfélaga á vettvangi (Forseti hringir.) samráðsnefndar ríkis og sveitarfélaga þar sem á að ræða frekar þessar aðgerðir og ég spyr hæstv. ráðherra: Er ekki öruggt að málefni Reykjavíkur verði rædd þar?