stuðningur við sveitarfélögin.
Virðulegi forseti. Það er að sjálfsögðu mikilvægt að öll sveitarfélögin séu hluti af því sem við erum að fjalla um og augljóst að stærsta sveitarfélagið er hluti af því. Þar búa flestir og þar af leiðandi þegar við erum að tala um viðkvæma hópa, börn af erlendum uppruna og börn foreldra með minni tekjur, búa þeir hlutfallslega flestir á Reykjavíkursvæðinu og þar af leiðandi fer mest fjármagn til þeirra. Ég skildi ekki alveg upplegg hv. þingmanns hvað það varðar.
Ef verið var að vísa til fasteignasjóðsins um aðgengi fyrir alla eru þar peningar sem sveitarfélögin geta sótt í til að byggja upp húsnæði fyrir fatlað fólk og hefur ekkert með aðra jöfnun í jöfnunarsjóðnum að gera. Öll þessi úrræði og Allir vinna verkefnið er augljóslega stærsta verkefnið fyrir sveitarfélagið Reykjavíkurborg. Það er auk þess stærsta sveitarfélagið og er þar af leiðandi í mestum burðum til að jafna byrðar á milli ólíkra hluta. Hér var skýrsla frá Reykjavíkurborg um daginn um hvað það kostaði mikið að hafa ferðaþjónustuna. Ég skildi reyndar ekki þá skýrslu, að það kostaði borgina 7–8 milljarða, ég verð að viðurkenna það, þannig að ef maður hefði tekið þá túlkun beint þýddi það að hún væri laus við þær byrðar núna, en ég ætla ekki að vera með svo léttúðugt tal hér.
Öll þau atriði sem við erum að gera félagslega lúta að öllum sveitarfélögunum. Ég hef stærstar áhyggjur af þeim sveitarfélögum þar sem atvinnuleysi er komið yfir 40%, þau eru það lítil að þau hafa enga burði til að takast á við þetta vegna tekjugrunnsins. Fyrirtækin í þeim sveitarfélögum sækja á sveitarfélögin að óska eftir að falla frá öllum gjöldum vegna þess að þau hreinlega muni ekki standa undir neinum rekstri. Það er engin stærri heild til að takast á við verkefnið. Þess vegna erum við að greina þetta nákvæmlega með Byggðastofnun og munum setja sérstakan hóp á laggirnar til að greina þróunina fram í tímann af því að aðgerðir í svona ástandi og afleiðingar þess geta þýtt að til framtíðar (Forseti hringir.) þurfum við að velta fyrir okkur hvernig tekjuskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga er háttað og verði betur gert í framtíðinni.