stuðningur við sveitarfélögin.
Virðulegur forseti. Ég vil bara árétta það að sveitarfélögin eru annað stjórnsýslustigið í landinu og jafnstætt ríkisvaldinu, sjá um þjónustu sem er að umfangi rúmlega 30% af heildinni. Það er fullkomlega eðlilegt að við ætlumst til þess að sveitarfélögin axli þann hluta. Þess vegna erum við búin að rýmka fjármálareglurnar og slíka hluti. En við gerum okkur öll ljóst að til að tryggja þá mikilvægu og viðkvæmu þjónustu sem sveitarfélögin sinna þurfum við að fara yfir það hvort tryggt sé að þau muni geta það öll sem eitt. Þess vegna höfum við m.a. jöfnunarsjóð. Ef við meinum eitthvað með því á þeim dögum sem við segjum að stærri sveitarfélög hafi burði til að reka sig á sjálfbæran hátt er augljóst að stærstu sveitarfélögin eru betur í stakk búin til þess en minni sveitarfélögin. (Gripið fram í.) Til þess er jöfnunarsjóður. Þess vegna, ef það kemur áfall þar sem verður enn meiri munur milli einstakra minni sveitarfélaga og annarra sem byggja tekjugrunn sinn á einhverju öðru en ferðaþjónustu, þurfum við að greina það áður en við grípum til aðgerða. (Forseti hringir.) Eins og ég hef sagt áður erum við að greina þetta mál með Byggðastofnun og munum setja á laggirnar sérstakan hóp með Sambandi íslenskra sveitarfélaga til að taka stöðuna og horfa til framtíðar með það fyrir augum að koma með aðgerðir sem duga.