150. löggjafarþing — 92. fundur,  22. apr. 2020.

framfærsluviðmið.

[11:00]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra svarið. Það er samt staðreynd ef við tökum listamannalaun út fyrir sviga og förum bara í atvinnuleysisbætur að þær eru um 300.000 kr. en skert laun eldri borgara og öryrkja 257.000, sem er minna. Þarna er mikill munur á. Ég spyr: Af hverju er ekki hægt að greiða öryrkjum og eldri borgurum t.d. 50.000 kr. á mánuði tímabundið, í þrjá, fjóra mánuði eða yfir versta tímann? Þeir eiga ekki að fá nema 20.000 kr. þann 1. júní og það er allt of seint. Ég veit um helling af fólki sem þarf á því að halda núna. Fólk sem þorir ekki að fara að heiman og þarf að panta mat, verð á matvöru hefur hækkað upp úr öllu valdi. Það er miklu dýrara að panta mat á netinu fyrir þá sem geta ekki farið í Bónus þar sem það fær ódýrasta matinn, það þarf að borga meira fyrir hann. Fólk þarf þetta núna, ekki 1. júní.