150. löggjafarþing — 92. fundur,  22. apr. 2020.

alþjóðasamvinna.

[11:07]
Horfa

Smári McCarthy (P):

Herra forseti. Ég veit ekki alveg hvar maður á að byrja. Ég átti von á einhvers konar svari, ég átti von á því að eftir allan þennan tíma myndi hæstv. utanríkisráðherra hafa alla vega eitthvað til að hreykja sér af. Það er rétt, við höfum sýnt forystu á sviði heilbrigðismála, en ef ég ætlaði að tala um það þá hefði ég viljað tala við hæstv. heilbrigðisráðherra. Staðan er sú að það hefur nánast ekkert gerst í alþjóðamálum á undanförnum mánuðum. Það hafa vissulega nokkur lönd verið erfið og ég skil það. Síðustu haldbæru fréttir sem ég heyrði frá hæstv. utanríkisráðherra voru um væntanleg samtöl við forystufólk í Bandaríkjunum, sem er vissulega einstaklega erfitt land um þessar mundir. En nú er ýmislegt opið. Það er opið á samgöngur milli Evrópuríkja að einhverju leyti. Það væri hægt að reyna að stuðla að frekari aðgerðum þar. Það væri alveg hægt að reyna að búa til meiri grundvöll fyrir alþjóðaviðskipti. (Forseti hringir.) En hvar er utanríkisráðherra búinn að vera?

(Forseti (SJS): Nú fær hæstv. utanríkisráðherra tækifæri til að upplýsa um það í síðara svari sínu.)