150. löggjafarþing — 92. fundur,  22. apr. 2020.

frumvarp um Matvælasjóð.

[11:10]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M):

Forseti. Hér er eitt mál á dagskránni, ég ætla að vona að það verði ekki sami hamagangur og var hér fyrir nokkrum dögum þegar við sáum mál á dagskránni sem sannarlega er ekkert tengt þessum Covid-faraldri, en við erum komin með enn eitt slíkt mál sem er þessi Matvælasjóður, mál sem var hafnað í þinginu fyrir nokkrum mánuðum, þar sem á að sameina tvo sjóði og búa til einn. Hér er það sett í eitthvert Covid-dulargervi til að reyna að koma því í gegnum þingið í lítilli umræðu, en það er einfaldlega ekki þannig. Þetta mál og þeir fjármunir sem á að bæta við — ég ætla að þakka ríkisstjórninni fyrir að ætla að bæta við nokkur hundruð milljónum þegar kemur að nýsköpun og öðru í landbúnaði. Það eru til ýmsir ferlar fyrir þessa fjármuni í dag, t.d. í þeim sjóðum sem eru til, AVS-sjóðnum og Framleiðnisjóði landbúnaðarins. Svo er annað sem við erum með og heitir Landbúnaðarklasinn. Við erum með fleiri aðila sem geta tekið við þessum fjármunum og komið þeim út. Til þess þarf ekki að fara með í gegnum þingið núna þingmál sem er í raun búið að hafna (Forseti hringir.) hér á þingi. Mér finnst þetta, herra forseti, ekki alveg í lagi og ekki miðað við það sem hefur verið rætt varðandi skipulag þingstarfanna.