frumvarp um Matvælasjóð.
Forseti vill upplýsa að dagskráin í dag er að mati forseta algjörlega í samræmi við samþykktir forsætisnefndar frá 19. mars og 14. apríl þar sem rætt var um að brýn mál sem fælu í sér aðgerðir eða viðbrögð við heimsfaraldri kórónuveiru yrðu höfð í forgangi. Í minnisblaði sem fylgdi þessu frumvarpi, sem forseti leit lítillega á í gær eins og í öðrum tilvikum til að glöggva sig sjálfur á því hvað væri á ferðinni, var talað um fjárveitingu sem fara ætti í sérstakt matvælaátak og ætti að fara í gegnum þennan sjóð.
Forseti ætlar síðan ekki að blanda sér í pólitískar deilur um það sem slíkt og mælir með að þingmenn ræði það eftir atvikum og útkljái í rannsókn sinni á málinu.
Forseti vill líka upplýsa að 7. dagskrármálið, sem einhverjir kunna að spyrja hvers vegna sé á dagskrá, sem er þingsályktunartillaga, þingmannamál, er sömuleiðis þingmál sem er ætlað að taka beinlínis á ástandinu vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Öfugt við það sem mætti ætla af fúkyrðaflaumi sem yfir forseta hefur gengið á undanförnum dögum er forseti maður orða sinna og stendur við það sem upplýst var í umræðum um þessi mál að þingmannamál sem tengdust Covid-faraldrinum myndu fá sams konar forgang og stjórnarfrumvörp. Það er ástæða þess að 7. dagskrármálið er á dagskrá fundarins.
Af hálfu forseta telur hann að hann hafi sett upp dagskrá sem er algjörlega í samræmi við samþykktir forsætisnefndar frá 19. mars og 14. apríl.