150. löggjafarþing — 92. fundur,  22. apr. 2020.

frumvarp um Matvælasjóð.

[11:13]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég vil bara nýta tækifærið og segja undir þessum lið að ég tel að sú ráðstöfun sem hv. þm. Gunnar Bragi Sveinsson gerir að umtalsefni, að verja hálfum milljarði til innlendrar matvælaframleiðslu (Gripið fram í.) í gegnum nýjan Matvælasjóð sé vönduð, það sé vandað að þeim fjármunum sé útdeilt með lagastoð. Hér er verið að leggja til frumvarp um nýjan sjóð. Hugsunin er ekki að þetta fari í gegnum gömlu sjóðina af því að hér eru ný markmið líka sem er verið að setja, til að mynda hvað varðar aukna samþættingu. Við eigum ekki að horfa á matvælaframleiðslu á Íslandi sem aðskilin mál, landbúnað og sjávarútveg, heldur eigum við að horfa til nýsköpunar í heild sinni.

Ég hefði talið að við hv. þingmaður værum sammála um að það þyrfti einmitt að nálgast þessi mál með nýjum hætti og að mikilvægt sé að gera það á vandaðan hátt. Þetta er tvímælalaust hluti af efnahagslegum viðbrögðum vegna veirufaraldursins og það er mikilvægt að um þessi fjárframlög sé búið með vönduðum hætti.