150. löggjafarþing — 92. fundur,  22. apr. 2020.

frumvarp um Matvælasjóð.

[11:15]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M):

Virðulegur forseti. Ég ætlaði ekkert að lengja þessa umræðu en hæstv. forsætisráðherra gaf alveg fullt tilefni til þess. Það eru ferlar til fyrir þessum fjármunum. Þess vegna þarf ekki nýtt lagafrumvarp til að koma þeim út. Það er alveg augljóst mál, hæstv. forseti.

Ræða sú sem hæstv. forsætisráðherra flutti er í rauninni ekki mikils virði, vil ég segja, í því sem við erum að ræða hér. Ég var bara að benda á það að hér er komið með þingmál sem var hafnað af þinginu fyrir nokkrum mánuðum um breytingar á tveimur sjóðum í skjóli þess að þetta sé Covid-tengt mál. Það er ekki þannig. Ef menn lesa frumvarpið sjá þeir meira að segja í greinargerðinni að fyrst og síðast sé verið að sameina þessa sjóði en það er hægt að tengja það þessum Covid-faraldri.

Ég er ekki á móti því að settir séu peningar í nýsköpun í landbúnaði eða að styrkja hann en það eru þegar til góðir sjóðir, góðar leiðir og góð verkefni sem geta tekið við þessum peningum. Til þess þarf ekki þetta frumvarp.