150. löggjafarþing — 92. fundur,  22. apr. 2020.

frumvarp um Matvælasjóð.

[11:16]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti væntir þess að efnisleg umræða um inntak 6. dagskrármálsins geti farið fram í umræðum um það þegar það kemur á dagskrá. Forseti gerir ekki athugasemdir við að rætt sé undir liðnum um fundarstjórn forseta um dagskrána eða gerðar athugasemdir við hana en vill ekki að efnisumræða um mál sem er á dagskrá þingfundar fari fram annars staðar en þegar það mál er tekið fyrir. Löng hefð er fyrir því að forsetar reyni að halda uppi aga í þeim efnum til að umræðan fari ekki út um dal og hól og sé við rétt dagskrármál hverju sinni.