fjáraukalög 2020.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til fjáraukalaga fyrir árið 2020 sem er að finna á þskj. 1253. Með frumvarpinu eru lagðar fyrir Alþingi tillögur um breytingar á fjárheimildum ýmissa málefnasviða og málaflokka vegna þeirra fordæmalausu aðstæðna í efnahagslífinu sem við búum nú við vegna Covid-19 heimsfaraldursins. Til að bregðast við efnahagslegum áhrifum af heimsfaraldrinum lagði ríkisstjórnin fram fyrsta aðgerðapakkann í mars sl. Þar var megináherslan lögð á að mæta þeirri skyndilegu röskun sem varð í stórum hluta efnahagskerfisins með því að tryggja eins og hægt var áframhaldandi ráðningarsamband launafólks og fyrirtækja og aðgengi fyrirtækja að lausafjármunum. Í þessu fólust m.a. greiðslur atvinnuleysisbóta samhliða skertu starfshlutfalli, greiðslur vegna launa einstaklinga sem sæta sóttkví, frestun á skattgreiðslum og veiting ábyrgða ríkisins á hluta lána til fyrirtækja í greiðsluvanda. Þá hefur verið ráðist í sérstakt fjárfestingarátak og heimildir veittar fyrir markaðsátaki í ferðaþjónustu, auk sérstaks barnabótaauka með öllum börnum.
Þessu til viðbótar samþykkti Alþingi við þinglega meðferð fyrsta frumvarps til fjáraukalaga fyrir árið 2020 tillögur meiri hluta fjárlaganefndar sem fólu í sér að styðja við þau heimili í landinu sem lakast standa. Þar var í fyrsta lagi um að ræða einskiptisgreiðslu til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega sem er skatta- og skerðingarlaus, einnig að styrkja úrræði vegna heimilislausra með fjölþættan vanda, auk þess sem veitt var fjármagn í aðgerðir sem vinna eiga gegn kvíða og einmanaleika.
Þegar fyrstu aðgerðir ríkisstjórnarinnar voru kynntar voru vonir bundnar við að efnahagssamdrátturinn yrði skammur og hagkerfið gæti unnið sig tiltölulega hratt út úr erfiðleikunum en nú hafa líkur aukist á að hann verði dýpri og langvinnari, ekki síst vegna alþjóðlegra ferðatakmarkana með gríðarlegum áhrifum á ferðaþjónustu. Hagkerfið stendur frammi fyrir tvíþættu áfalli sem birtist annars vegar í því að innlend eftirspurn hefur dregist hratt saman sem má m.a. rekja til aðgerða stjórnvalda sem miða að því að lágmarka útbreiðslu faraldursins og hins vegar í alvarlegu tekjufalli ferðaþjónustu og allra tengdra greina sem getur haft ákveðin áhrif langt út fyrir raðir ferðaþjónustunnar. Af þeim sökum er útlit fyrir að atvinnuleysi geti orðið meira og langvinnara en áður var gert ráð fyrir.
Þannig má t.d. benda á að í nýlegri spá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um horfur í heimshagkerfinu er gert ráð fyrir um 3% samdrætti í heimsbúskapnum á þessu ári sem væri umtalsvert meiri samdráttur en í fjármálakreppunni fyrir áratug. Þá er í spánni gert ráð fyrir að hagvöxtur verði enn lakari meðal þróaðra ríkja þar sem áætlað er að samdrátturinn verði yfir 6% að jafnaði. Á hinn bóginn gerir Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn ráð fyrir að öflugur viðsnúningur skili nærri 6% hagvexti á árinu 2021 á heimsvísu og 4,5% hagvexti hjá þróuðum ríkjum þótt meiri óvissa sé um þá þróun. Hér á landi gerir spáin ráð fyrir 7% samdrætti í ár en um 6% hagvexti á því næsta.
Frumvarp þetta og önnur sem lögð eru fram samhliða því fela því í sér frekari viðbrögð við þeim afleiðingum sem fram eru komnar af völdum faraldursins. Markmið frumvarpsins er að auka enn frekar stuðning við fyrirtæki auk þess að útvíkka fyrri ráðstafanir með því að ná til hópa sem fyrri aðgerðir náðu ekki til. Í þessum aðgerðapakka eru ýmis félagsleg úrræði sem teygja sig til veikrar stöðu heimila, m.a. vegna aukins atvinnuleysis. Þá er aðgerðunum ætlað að verja samfélagið gegn heilsufarslegum og annars konar áhrifum sem um er rætt í þinginu. Um er að ræða ráðstafanir í ríkisfjármálum sem lúta að skattamálum, fjárstuðningi til rekstraraðila og stuðningi við nýsköpunarfyrirtæki auk sérstaks rekstrarstuðnings til einkarekinna fjölmiðla og víðtækra félagslegra úrræða.
Aðgerðirnar beinast að bráðavandanum og eru ásamt fyrirgreiðslu lánastofnana til þess hugsaðar að gera fyrirtækjum og heimilum betur kleift að halda í horfinu þar til útbreiðsla veirunnar hefur verið stöðvuð. Ljóst er að staða og horfur breytast hratt um þessar mundir og því er nauðsynlegt að viðbrögð stjórnvalda á hverju stigi taki mið af þeim breytingum eftir því sem þeim vindur fram á árinu. Því er ljóst að stjórnvöld munu leggja til frekari ráðstafanir síðar sem munu beinast að því að bregðast við þeim afleiðingum sem enn eiga eftir að fylgja í kjölfarið á þeim sem nú þegar eru komnar fram. Á næstu vikum mun staðan skýrast enn frekar en þróun aðstæðna er m.a. háð árangri aðgerða hér á landi og í helstu viðskiptalöndum í því að hefta og uppræta faraldurinn og þar með því að létta höftum af efnahagsstarfsemi og ekki síst ferðalögum.
Líkt og í fjáraukalögunum sem voru samþykkt í lok mars er í þessu frumvarpi fyrst og fremst verið að leggja til að veittar verði auknar fjárheimildir vegna ákvarðana ríkisstjórnarinnar um afmarkaðar og tímabundnar ráðstafanir á þessu stigi máls. Rétt er að hafa í huga að afkoma ríkissjóðs mun versna verulega á yfirstandandi ári og að stærðargráða hallans á greiðsluafkomugrunni gæti orðið umtalsvert hærri en í kjölfarið á falli bankakerfisins haustið 2008. Þetta mun óhjákvæmilega hafa umtalsverð áhrif á skuldastöðuna þegar fram í sækir en ríkissjóður er þó vel í stakk búinn til að mæta slíku áfalli. Þær aðgerðir sem gripið hefur verið til fram til þessa hafa það meginmarkmið að lágmarka langtímaáhrif núverandi aðstæðna á heimili og efnahag landsins.
Til viðbótar þeim sérstöku ráðstöfunum vegna kórónuveirufaraldursins sem gripið hefur verið til má líta svo á að helsta mótvægisviðbragð stjórnvalda felist í því að halda uppi óbreyttum umsvifum eins langt og hægt er að ganga í því efni, svo sem í opinberri þjónustu og lífeyris- og bótagreiðslum, þrátt fyrir að skyndilegur tekjubrestur hafi kippt stoðunum undan fjáröflun hins opinbera. Þannig myndast umtalsverður slaki á aðhaldsstigi ríkisfjármálanna sem leyfir sjálfvirkum sveiflujöfnurum að virka til fulls. Hins vegar er jafn ljóst að því eru takmörk sett hversu lengi og í hvaða mæli ríkisfjármálin geta staðist slíka áraun án þess að þau láti undan síga og að það fjari undan styrk þeirra til að standa undir hlutverki sínu til lengri tíma litið. Við lausn bráðavandans má því ekki missa sjónar á því að á komandi árum mun þurfa að brúa framkomið misvægi tekna og útgjalda ríkissjóðs og bæta skuldastöðuna jafnt og þétt þar til hún verður orðin hófleg að nýju.
Virðulegi forseti. Í þessu frumvarpi eru gerðar tillögur um ný verkefni og auknar heimildir sem varða útgjaldamál og voru ófyrirséð við afgreiðslu fjárlaga eða teljast nú orðin brýn eða óhjákvæmileg. Í frumvarpinu er farið fram á að fjárheimildir ríkissjóðs á árinu 2020 verði auknar um 13,2 milljarða kr. en það svarar til um 1,3% hækkunar á áður samþykktum fjárheimildum. Hafa þá fjárheimildir hækkað um 39 milljarða kr. frá því að fjárlög fyrir árið 2020 voru samþykkt í nóvember sl. Samtals nema gildandi fjárheimildir fyrir árið 2020 um 1.030 milljörðum kr. Umfang tillagnanna skýrist af fáum en þýðingarmiklum útgjaldamálum.
Þá eru í 4. gr. frumvarpsins einnig lagðar til breytingar á heimildarákvæðum í 6. gr. fjárlaga fyrir árið 2020.
Ég ætla nú að víkja að meginefni frumvarpsins. Í fyrsta lagi er lagt til að auka fjárheimildir vegna félagslegra aðgerða um 8,4 milljarða kr. Fjárheimildin er ætluð annars vegar til þeirra hópa samfélagsins sem brýnt þykir að styðja við sökum efnahagsástandsins og hins vegar til starfsfólks heilbrigðisþjónustunnar sem hefur verið undir miklu álagi í starfi vegna Covid-19 faraldursins.
Veigamesta félagslega aðgerðin varðar atvinnuúrræði fyrir námsmenn sem eiga engan eða takmarkaðan rétt til atvinnuleysisbóta og námsúrræði fyrir atvinnuleitendur í sumar og næsta vetur og verður varið allt að 5 milljörðum kr. til þessa. Vonir standa til þess að ríki og sveitarfélög geti sameiginlega skapað um 3.000 sumarstörf fyrir námsmenn með sérstöku átaki. Einnig er ætlunin að bjóða upp á námsframboð fyrir háskóla- og framhaldsskólanema í sumar og sérstök námsúrræði fyrir atvinnuleitendur á næstu 12 mánuðum til að mæta vaxandi hópi atvinnuleitenda. Markmiðið með aðgerðunum er að mæta menntunar- og virkniþörf atvinnuleitenda til að viðhalda, bæta eða breyta færni vinnuaflsins til sóknar þegar atvinnuástand batnar. Þá er gert ráð fyrir að 1 milljarði verði varið til sérstaks launaauka í formi eingreiðslu til þess heilbrigðisstarfsfólks sem staðið hefur í framlínunni.
Þá verður farið í aðgerðir fyrir tæpan 1 milljarð til að auka félagsleg úrræði. Aðgerðirnar miða m.a. að því að vinna gegn félagslegri einangrun aldraðra og öryrkja og styðja við þá einstaklinga sem sinna umönnun langveikra barna sem búa nú við skerta þjónustu vegna áhrifa faraldursins. Einnig verður sérstök áhersla lögð á aðgerðir gegn heimilisofbeldi og ofbeldi gegn börnum með auknum stuðningi við þolendur og fjölskyldur þeirra auk viðbótarframlaga til Barnahúss. Þá er gert ráð fyrir fjárveitingu til að takast á við áskoranir sem fylgja í félagsþjónustu og barnavernd í dreifðustu byggðum landsins.
Einnig er fyrirhugað að veita 540 millj. kr. til að stuðla að geðrækt og bættri andlegri heilsu íbúa landsins. Heilsugæsluþjónustan um land allt verður stórefld með sérstakri áherslu á geðrækt og andlegt heilbrigði. Í því felst að sérhæfðu starfsfólki innan heilsugæslunnar verður fjölgað, svo sem geðlæknum, sálfræðingum og félagsráðgjöfum. Þá verður fjarheilbrigðisþjónustan aukin enn frekar sem og samhæfing og samræming á þjónustu heilsugæslunnar á landsvísu.
Að lokum ber að nefna aðgerðir á sveitarstjórnarstigi en þær munu stuðla að uppbyggingu og bættum úrræðum fyrir tæpan 1 milljarð kr. Þar vegur þyngst 600 millj. kr. framlag til sveitarfélaga í því skyni að gera þeim kleift að veita tekjulágum heimilum styrki þannig að öll börn geti óháð efnahag stundað íþróttir og aðrar tómstundir í sumar og fram eftir árinu. Þá er einnig gert ráð fyrir 250 millj. kr. til aðgerða á Suðurnesjum. Ljóst er að staðan í þeim landshluta krefst sérstakra úrræða þar sem íbúar hans hafa fundið sérstaklega fyrir afleiðingum þess ástands sem hefur skapast.
Framangreindar félagslegar aðgerðir voru metnar út frá áhrifum á jafnrétti kynjanna með aðferðum kynjaðrar fjárlagagerðar. Samkvæmt matinu eru aðgerðirnar ýmist taldar stuðla að auknu jafnrétti eða viðhalda óbreyttu ástandi en það veltur þó mikið á útfærslu aðgerðanna þar sem það á við.
Í öðru lagi er lagt til að auka fjárheimildir um 2,5 milljarða kr. sem nýttir verða til að veita minni rekstraraðilum fjárstuðning. Það eru þá þeir aðilar sem hafa þurft að loka rekstri eða láta af starfsemi samkvæmt opinberum tilmælum vegna farsóttavarna og af þeim sökum orðið fyrir tekjutapi. Aðgerðin miðast við fyrirtæki sem hafa í flestum tilvikum lítil tök á því að afla tekna til að standa undir föstum kostnaði þegar þeim hefur verið gert að hreinlega loka starfseminni. Lokunarstyrkir eru þannig liður í að bæta að hluta a.m.k. það tekjutap sem fyrirtækin urðu fyrir og stuðla þannig að því að viðhalda atvinnustigi og efnahagsumsvifum. Ég verð að segja að mér finnst þetta vera hreint sanngirnismál.
Í þriðja lagi er í frumvarpinu að finna tillögu um að auka fjárheimildir um 2,3 milljarða til að efla nýsköpun og þróun í samfélaginu. Aðgerðin miðar að því að veita fjármagn í nokkra sjóði sem munu svo úthluta fjármagninu samkvæmt úthlutunarreglum og markmiðum hvers og eins þeirra. Stærsti hluti fjármagnsins mun fara til sprota- og nýsköpunarsjóðsins Kríu. Þá verður veitt fjármagn til að efla nýsköpun og þróun í innlendri matvælaframleiðslu og til kynningarátaks um að verja störf og auka verðmætasköpun á Íslandi. Einnig verður fjármagn veitt í launasjóði listamanna og enn fremur til Nýsköpunarsjóðs námsmanna þar sem áhersla verður lögð á þjálfun í frumkvöðlamennsku og nýsköpun. Markmiðið er að sporna gegn atvinnuleysi og efla nýsköpun meðal ungs fólks.
Ég ætla þá næst að víkja að nýjum heimildum í frumvarpi til fjáraukalaga. Í 3. gr. frumvarpsins er lögð til breyting á heimildarákvæðum í 6. gr. fjárlaga fyrir árið 2020. Lagt er til að við greinina bætist einn nýr liður, 7.33, vegna viðbótarábyrgða ríkissjóðs á lánum til einstaklinga og lögaðila sem stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi. Þar er ráðherra veitt heimild til að veita lánastofnunum fulla ábyrgð á vegum ríkissjóðs á nýjum lánum til að styðja við rekstraraðila sem hafa orðið fyrir tímabundnum skakkaföllum vegna heimsfaraldursins og fullnægja ákveðnum kröfum. Miðað er við að lánin verði veitt fyrir árslok 2020 og nýtist minni aðilum sem orðið hafa fyrir tímabundnum tekjusamdrætti. Um þetta er vísað nánar til annars frumvarps sem er á dagskrá í dag. Þá er einnig lagt til í þessu frumvarpi að heimilt sé að semja við Seðlabanka Íslands um að annast umsýslu vegna ábyrgða ríkissjóðs á lánum til rekstraraðila með sambærilegum hætti og gildir um heimild 7.32 vegna ábyrgða ríkissjóðs á viðbótarlánum til fyrirtækja.
Hæstv. forseti. Nú hef ég farið yfir helstu þætti þessa frumvarps til fjáraukalaga fyrir árið 2020 og legg til að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. fjárlaganefndar þingsins sem fær málið til skoðunar.