150. löggjafarþing — 92. fundur,  22. apr. 2020.

fjáraukalög 2020.

724. mál
[11:33]
Horfa

Ágúst Ólafur Ágústsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Það vakti athygli mína að í 36 blaðsíðna glærupakka ríkisstjórnarinnar er hvergi minnst á heimili, hvergi. Það segir allt um áherslur ríkisstjórnarinnar. Hvar eru beinu aðgerðirnar sem eru fyrir fólkið í landinu? Finnst ráðherra boðlegt að láta allt að einn fjórða Íslendinga fara á 290.000 kr. atvinnuleysisbætur? Treystir ráðherrann sjálfur sér til að lifa á 290.000 kr. á mánuði?

Ég vil einnig spyrja ráðherrann hvort 350 milljónirnar sem eiga að fara til fjölmiðla séu viðbót við þær 400 milljónir sem nú þegar hafa verið eyrnamerktar fjölmiðlum. Hvað gerist við þær 400 milljónir ef meiri hlutinn afgreiðir ekki fjölmiðlafrumvarpið frá sér? Þetta skiptir miklu máli.

Í þriðja lagi: Hvar eru aðgerðirnar fyrir litlu fyrirtækin, ekki síst í ferðaþjónustunni, sem blæðir út? Jú, þau fá að taka lán. Jibbí kóla! Lán þarf að greiða til baka. Hvar eru beinu stuðningsaðgerðirnar við litlu fyrirtækin? (Forseti hringir.) Það er ljóst að þau sjálf koma a.m.k. ekki auga á þær í þessum pakka.