fjáraukalög 2020.
Virðulegi forseti. Við erum ekki í ágreiningi um þetta. Hv. þingmaður leggur til að við leggjum af alla kostnaðarþátttöku sjúklinga sem eru undir ákveðnu tekjuviðmiði og ég bendi á að kostnaðarþátttakan hefur verið lækkuð mjög verulega og aðgengi að heilbrigðisþjónustu stóraukið. Heilsugæslan hefur verið stórefld og afar lágt gjald er greitt fyrir þjónustu þar þannig að ég þyrfti að fá betri dæmi um raunverulega kostnaðarþátttöku til að sjá að sá vandi sé raunverulegur sem hv. þingmaður bendir á. Það sem liggur núna fyrir þinginu að taka afstöðu til er tillaga frá ríkisstjórninni um að stórefla geðheilbrigðisþjónustuna.