150. löggjafarþing — 92. fundur,  22. apr. 2020.

fjáraukalög 2020.

724. mál
[11:49]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að hér sé stutt í einhvers konar orðhengilshátt, að aðgerðir stjórnvalda snúi að því að styðja við einhverja lögaðila sem séu ekki í neinum tengslum við fólk. Sú kenning stenst ekki skoðun. Við erum að gera þetta einmitt til að bjarga störfum. Hlutastarfaleiðin er skilyrt því að menn viðhaldi ráðningarsambandi við fólk. Ég skil ekki alveg hvað hv. þingmaður á við þegar hann segir að við ættum að líta til Bandaríkjanna og horfa til þess hvernig við gætum gert fyrirtækjum léttbærara að hætta starfsemi. Í hvað er hv. þingmaður að vísa? Er hann að vísa í að við ættum að losa fyrirtæki undan skyldunni til að greiða fólki laun í uppsagnarfresti? Það er ameríska leiðin, engin laun í uppsagnarfresti, þrír mánuðir, fimm mánuðir eftir kjarasamningum og einstaka starfssamningum. Í hvað er hv. þingmaður að vísa? Hvað eigum við að gera á Íslandi sem er gert svona vel í Bandaríkjunum sem gerir fyrirtækjum kleift að hætta starfsemi?