fjáraukalög 2020.
Virðulegi forseti. Ég er að spyrja spurninganna hérna. Hið augljósa er að við viljum að þegar fyrirtæki hætta skuldi þau ekki neinum, sérstaklega ekki því fólki sem vinnur hjá þeim. Áhersla á fólk fyrst myndi einfaldlega hafa góð áhrif á t.d. einkaneysluna sem ég veit að Sjálfstæðisflokknum er mjög annt um. Einnig myndi ég vilja að betur væri fjallað um kerfislega mikilvæg fyrirtæki sem hafa sífellt komið upp í umræðunni að undanförnu. Ef þau eru kerfislega mikilvæg, af hverju eru þau ekki skilgreind þannig fyrir fram, t.d. að þau hafi lagalega ábyrgð hvað það varðar, þannig að við vitum þegar harðnar í ári hvaða skyldur og hvaða ábyrgð slík fyrirtæki hafa og hvers vegna almenningur og ríkissjóður eigi að koma þeim til bjargar? Væntanlega á það að gagnast fólki.
Margt í þessu er varhugavert. Ráðherra segir að þetta sé vel rökstutt og undirbúið frumvarp en hið gagnstæða er augljóst í greinargerð frumvarpsins, t.d. er (Forseti hringir.) kynjaða fjárlagagerðin bara vegna félagslega pakkans. Það vannst ekki tími til að vinna hana gagnvart hinum aðgerðunum.