150. löggjafarþing — 92. fundur,  22. apr. 2020.

fjáraukalög 2020.

724. mál
[12:11]
Horfa

Ágúst Ólafur Ágústsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Nú finnst mér vera komið aðeins annað hljóð í ráðherrann varðandi fjölmiðlamálið. Hér var kynnt í gær að það væri innspýting í fjölmiðla upp á 350 milljónir. Það mátti skilja það sem viðbót, sem innspýtingu, þetta var í aðgerðapakkanum. Nú kemur í ljós, ef ég skil ráðherrann rétt, sem ég held að ég geri, að þetta er ekki viðbót. Það væri sérstök ákvörðun sem við gætum tekið, ef ég skil hann rétt. Hér er einfaldlega um lækkun að ræða. Við vorum búin að ákveða að setja 400 milljónir til fjölmiðla. Það er samt ekki búið að afgreiða úr nefnd, það stendur m.a. í Sjálfstæðismönnum í allsherjarnefnd, eins og ég skil það. Þessi viðbót kemur þá ekki inn nema með sjálfstæðri ákvörðun. Þessar 350 millj. kr. eru því einfaldlega lækkun frá því sem fyrirhugað var ef nefndin afgreiðir ekki málið. Ég hefði frekar viljað sjá hér talað um 750 milljónir. Við erum búin að ákveða á fjárlögum að 400 milljónir eigi að fara í fjölmiðla. Svo á nefndin bara að leysa úr því hvernig það er útfært. Fjárveitingarvaldið er búið að ákveða að setja 400 milljónir í frjálsa fjölmiðla og ég hélt að við værum núna að setja meira til þeirra. Það sem er hér á ferðinni mun örugglega vekja mikla athygli.

Ég er sammála ráðherranum um verðmætasköpun, auðvitað þurfum við að skapa verðmæti, en ég nefni tvennt. Ég hef oft öskrað mig hásan um það að við verðum að setja meira í nýsköpun, það býr til verðmæti, setjum meira í sjóðina, í Tækniþróunarsjóð. Ég veit að það er búið að bæta í en þetta er of lítið. Setjum meira í Kríu, setjum meira í Kvikmyndasjóð sem tók 30% högg á sig í síðustu fjárlögum. Þetta skapar verðmæti.

Svo langar mig að lokum að draga fram að fjárfestingar í opinberum störfum og framkvæmdum skapa líka verðmæti. Við erum í ákveðinni innviðaskuld, það er hugtak sem hefur verið notað. Við þurfum að fjárfesta í opinberum innviðum. Það skilar okkur verðmætum í framtíðinni. (Forseti hringir.) Það má ekki alltaf nálgast þetta þannig að hið opinbera (Forseti hringir.) skapi engin verðmæti því að hið opinbera skapar heilmikil verðmæti. (Forseti hringir.) Við eigum að stórefla opinbera fjárfestingu, ekki síst í svona ástandi. Það er einfaldlega góð pólitík og góð hagfræði, frú forseti.

(Forseti (BHar): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða tímamörk.)