fjáraukalög 2020.
Virðulegi forseti. Aftur um fjölmiðlamálið. Hér er um einskiptisaðgerð að ræða á móti hins vegar varanlegum lögum, sem er málið sem liggur fyrir nefndinni. 400 milljónirnar sem hv. þingmaður nefnir eru auðvitað fjármögnun vegna lagafrumvarps sem hefði getað tekið til ársins 2020 í heild sinni og er enn í höndum þingsins að afgreiða en er varanleg ráðstöfun. Það er sem sagt lagaumhverfi sem verið er að smíða fyrir fjölmiðlastarfsemi í landinu til framtíðar. Það sem við erum að leggja til er að hvað sem öðru líður komi a.m.k. að lágmarki núna í einskiptisaðgerð þessar 350 milljónir. Það er kjarni málsins í þessari tillögu. Það getur orðið til þess að heildarframlögin til fjölmiðla á þessu ári verði töluvert meiri. Það fer m.a. eftir gildistöku nýs frumvarps um umhverfi fjölmiðla, hvenær það mál klárast og frá hvaða tíma það gildir.