fjáraukalög 2020.
Frú forseti. Ég ætla svo sem ekki að hjakka áfram í sama farinu en einskiptisstuðningur við fjölmiðla var ákveðinn í síðustu fjárlögum, núgildandi fjárlögum, 400 milljónir. Við erum búin að taka þá ákvörðun. Þess vegna finnst mér dálítið merkilegt að hér sé verið að boða aðra einskiptisaðgerð sem á hugsanlega að taka við af hinni. Ég vona svo sannarlega að meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar afgreiði einfaldlega það mál með 400 millj. kr., því að þær liggja fyrir. Þingið vill setja 400 milljónir í fjölmiðla. Þess vegna er afskaplega sérkennilegt ef niðurstaðan verður síðan, ef ekki næst samstaða hjá meiri hluta nefndarinnar, að fjölmiðlar fái hugsanlega lækkun úr 400 milljónum í 350. Þetta eru ekki stórar tölur en þær skipta máli fyrir litla fjölmiðla og í rauninni alla fjölmiðla. Gerum bara vel við fjölmiðla sem skipa lykilhlutverk varðandi alla upplýsingagjöf og lýðræðisþátttöku og annað slíkt. Ég þarf ekki að fara með þá rullu, hvað þá á þessum tíma. Ríkisstjórnin er núna að setja á fót einhverja hópa gegn röngum fréttum. (Forseti hringir.) Við þurfum jafn mikið á fjölmiðlum að halda núna og þeir á okkur, þannig að verum ekki nísk þegar kemur að þeim.